Kári Stefánsson vill að efnameiri borgi hærri skatta

Kára Stef­áns­syni, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, blöskrar það að ein­göngu 20% skattur er greiddur af fjár­magnstekjum á meðan 40% skattur er greiddur af tekjum. Hann segir skatt­kerfið órétt­látt og að vegna smæðar sinnar þoli íslenskt sam­fé­lag ekki jafn mik­inn ójöfnuð og stórt sam­fé­lag.

Þetta segir Kári í sam­tali við Helga Seljan í fyrsta þætt­inum af Ferð til fjár. Þætt­irnir hefja göngu sína á RÚV í kvöld klukkan 20:05. Frétta­stofa RÚV greinir frá.

„Eitt af því sem mér blöskrar er að þegar ég fæ arð af eignum mínum, með því að selja eignir sem ég á, þá greiði ég af því 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt, en konan sem þvær gólfið á skrif­stofu mínni með sínar 350 til 400 þús­und krónur á mán­uði, borgar 40 pró­sent tekju­skatt,“ segir Kári. „Hvernig í ósköp­unum getur það kall­ast rétt­læti að menn borga minna af tekjum sem þeir hafa af eignum sínum án þess þurfa að standa upp úr stól en þeir þurfa að borga fyrir fyrir það sem þeir vinna fyrir í sveita síns and­lits.“

Kári gefur lítið fyrir þau rök að slík breyt­ing myndi fæla burtu fleiri auð­uga Íslend­inga úr landi vegna þess að kerfið yrði öðru­vísi en þekk­ist ann­ars­staðar. „Svarið er að flestir þeirra gera það hvort sem er og það er ekki miklu að tapa."

Kári segir einnig það sjón­ar­mið vera uppi að eðli­legt væri að setja hámark á hvað menn greiða til sam­fé­lags­ins svo þeir væru ekki að bera of stóran hluta af byrð­inni. „Svarið við því er að það má líka segja að menn hafi fengið of stóran hund­raðs­hluta af þeim arði sem fæst í sam­fé­lag­inu þannig að það jafn­ast út. Stað­reyndin er hins­vegar sú að það er ákveð­inn hund­raðs­hluti fólks í íslensku sam­fé­lagi sem hefur mjög miklar tekjur og greiðir af þeim miklu lægri skatt en flest venju­legt fólk. Ég held að þetta sé ekki rétt­látt, ég held að þetta sé óskyn­sam­legt. Í mínu hjarta og huga vekur þetta upp heldur leið­in­legar til­finn­ingar að það skuli vera búið til kerfi sem er svona órétt­látt.“

Spurður hvort þessi orð hans þýði að hann vilji borga meiri skatta segir Kári málið ekki snú­ast um hvað hann langi til að gera heldur hvernig sam­fé­lagi hann langi að búa í. „Og kannski, guði sé lof fyrir ykkur, þá hef ég afskap­lega lítil áhrif á þetta sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár