Árið 2014: Frábært ár fyrir íslenska tónlist

Oftar en ekki hlakkar í hverjum og einum djúpt þenkj­andi tón­list­arnirði þegar árið er á enda. Árslok er sá tími er farið er yfir hvað það var sem bar höfuð og herðar yfir annað og hvort árið í ár sé frá­brugðið öðrum sem á undan eru gengin.

Sama hvað hver segir þá var árið 2014 hefur verið ein­stak­lega gjöf­ult og skemmti­legt tón­list­arár sem er sneisa­fullt af útgáfu af úrvals­tón­list sem við Íslend­ingar getum verið mjög stolt af. 2014 var einnig eitt besta tón­leikaár sem sögur fara af og báru ansi margar stöðu­færslur það með sér að tón­list­arunn­endur væru gap­andi yfir því fram­boði af tón­leikum sem í boði voru á árinu.

Tón­list­ar­sala náði ekki sögu­legum hæðum í ár frekar en und­an­farin tvö ár og á árinu hafa nokkrar inn­lendar blaða­greinar birst þar sem útgef­endur hafa básúnað áhyggjum sínum af dræmri plötu­sölu og hefur fras­inn „dauði geisla­diskins“ ótt og títt fengið að hljóma eða verið birtur í rit­uðu máli.

Í þess­ari grein verður stiklað á því fers­kasta og skemmti­leg­asta sem leit dags­ins ljós í ár að mati grein­ar­höf­undar Kjarnans, jafnt í útgáfu á tón­list og sem og tón­leikum á árinu.

Rokkið varð aftur spennandi og hættulegt


Það er ein­lægt mat grein­ar­höf­undar að rokkið á Íslandi hefur ekki verið eins bein­skeytt í háa herr­ans tíð eins og í ár. Und­an­farin ár hefur verið að grass­era galsa­fengin rokktón­list­ar­sena í skúma­skotum Reykja­víkur og nágrennis. Þetta eru hljóm­sveitir sem koma til dyrnar eins og þær eru klæddar og þora að tala hreint út, rífa kjaft, rífa niður og gefa skít í hluti og staðalí­myndir.

https://www.youtube.com/watch?v=WCqsABla8r8

Í ár varð rokkið aftur spenn­andi fyr­ir­bæri og á köflum jafn­vel hættu­legt. Þökk sé ungum hljóm­sveitum á borð við Börn sem sendi frá sam­nefnda sjö laga skífu hvössum textum er deila á staðalí­myndir nútím­ans yfir kulda­legt og ögrandi síð­pönk. Ein besta tón­leika­sveit lands­ins Grísalappalísa sendi í sumar frá sér sína aðra breið­skífu á tveimur árum og topp­uðu sig með hinni frá­bæru Rökrétt Framhald sem í sjálfu sér ber nafn með rentu. Platan ber þó engin merki um erf­iða aðra plötu þar sem sveitin betrumbætir sig að öllu leyti.

Pink Street Boys er án efa ein kald­hæðn­asta, skítug­asta og háværasta rokk­sveit sem stigið hefur fram á sjón­ar­sviðið í langan tíma. Trash From The Boys kæru­leys­is­leg, bein­skeytt og galsa­full plata sem gefur flestum og flestu langt nef. Íslenska rokkið aftur orðið sveitt, skítugt og á margan hátt kyn­þokka­fullt eins og það á að vera. Rokkið er orðið verk­færi til að kveða niður flatneskju og ríkj­andi með­al­mennsku.

Aðrar fram­bæri­legar nýjar rokksveitir eru Oyama, Atónal Blús, Kvöl, Icarus, Godchilla, russian.girls og Mercy Buckets sem allar létu að sér kveða á árinu og gáfu út afbragðs breið­skífur og þröngskífur sem eru ýmist fáan­legar á staf­rænu eða físísku formi í helstu plötu­búðum lands­ins.

https://www.youtube.com/watch?v=0KMEAwgB26g

Af öðrum toga eru eldri rokksveitir eins og Sól­stafir og Kimono sem báðar sendu frá sér nýtt efni. Sveim­málm­sveitin Sól­stafir var stofnuð undir mið­bik tíunda ára­tugar síð­ustu aldar og hafa verið að vaxa jafnt og þétt allan sinn feril enda virki­lega metn­að­ar­full og þrautseig sveit og er Ótta með þeirra betri verkum. Kimono þekkja flestir þenkj­andi tón­list­arunn­endur og sendi hún frá sér eina bestu smá­skífu árs­ins, „Spectres“. Á A-hlið smá­skíf­unnar hefur þrí­eykið sjaldan verið jafn gríp­andi og hnit­miðað en heldur þó fast í flækju­stigið sem hefur ein­kennt laga­smíðar þeirra í gegnum árin. B-hliðin inni­heldur þeirra útgáfu af einu besta lagi íslenskrar rokk­sögu, „Rúdolf“ eftir hljóm­sveit­ina Þeyr.

Góð tónlist úr öllum áttum


Prins Póló sendu frá sér sína þriðju breið­skífu í ár og er óhætt að segja að 2014 hafi á margan hátt verið þeirra ár. Sorrí inni­heldur hvern smell­inn af fætur öðrum og má þar nefna lög á borð við „Fallegi smið­ur­inn“, „Tipp Topp“ og „Bragð­ar­efir“. Prins Póló gerðu líka tón­list­ina í hinni fínu kvik­mynd París Norð­urs­ins og er tit­ilag mynd­ar­innar frá­bært lag sem vakti mikla lukku. Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður úr Vest­manna­eyjum og er smá­skífan hans „Color Decay“ með betri frum­burðum sem heyrst hafa lengi. Júníus hefur vakið ein­hverja athygli Vest­an­hafs og er biðin eftir hans fyrstu breið­skífu spenn­andi.

https://www.youtube.com/watch?v=8XVt7HBtc0k

Teitur Magn­ús­son er þekkt­astur sem annar söngv­ari reggís­veit­ar­innar Ojba Rasta.Hann sendi frá sér sína fyrstu sól­ó­skífu undir lok árs og ber hún heitið Tuttugu og sjö. Skífuna vann hann í sam­vinnu við breska tón­list­ar­mann­inn Mike Lindsay og er frá­bær sýru­popp­skífa sem sækir áhrif sín í heims­tón­list, skyn­villu­tón­list sjö­unda ára­tug­ar­ins og eru lög eins og „Nenni“, „Mun­að­ar­hóf“ og „Vinur vina minna“ hreint út sagt frá­bær. Útgáfa hans af „Háflóð“, lagi Bubba Morthens, einnig gletti­leg skemmti­leg.

Af öðrum fram­úr­skar­andi plötum í ár má nefna Inn­hverfi sem er fyrsta breið­skífa tón­list­ar­manns­ins Óbó, Skyn­villa hans Futuregrap­her, They Hold It For Certain sem er sam­starfs­skífa Skúla Sverr­is­sonar, Anthony Burr og Yungchen Lhamo. Kippi Kanínus sendi einnig frá sér lang­þráða breið­skífu sem heitir Tempera­ments. Low Roar, M-Band og Kiasmos sendu einnig frá sér fínar plötur.

Einstakt tónleikaár


Árið 2014 var stút­fullt af frá­bærum tón­leikum og á árinu voru haldnar fjórar stórar tón­list­ar­há­tíðir og eru tvær af þeim alþjóð­legar, þ.e. All Tomorrow‘s Parties og Sónar Reykja­vík, en með miklu íslensku ívafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár