Árið 2014: Seinni hluti tónlistarársins

Líkt og í sam­an­tekt und­ir­rit­aðrar yfir áhuga­verðar plötur sem gefnar voru út fyrri part árs­ins 2014 er af nógu að taka þegar litið er til útgáfa síð­ari hluta árs­ins. Hlustið og njótið!

Tony Allen – Film Of Life


https://www.youtube.com/watch?v=OeNCLU_Ho6M

Fyrrum liðs­maður Fela Kuti og einn guð­feðra afró-bíts­ins sendi frá sér skemmti­lega plötu sem heldur þétt­ings­fast í ein­kenn­is­hljóm Allen en kynnir jafnt til leiks nýjan hljóm hans, til að mynda með sam­starfs­mönnum á borð við Damon Albarn.

alt-J – This Is All Yours


https://www.youtube.com/watch?v=dCCXq9QB-dQ

Það verður seint sagt um alt-J, eða ∆, að sveitin kunni ekki að semja gríp­andi jað­ar­popp­lög. This Is All Yours er kannski ekki jafn sneisa­full af slög­urum og for­veri hennar An Awesome Wave, en hún er heil­steypt­ara verk sem rennur vel í gegn.

Oren Ambarchi - Quixotism


https://www.youtube.com/watch?v=uu11GQL8IQA

Oren Ambarchi lyftir til­raunatón­list á hærra plan með Quixotism, sem sam­anstendur af fimm pörtum sem meðal ann­ars voru teknir upp í Hörpu ásamt Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og í Japan með goð­sögn­inni Jim O’Rourke. Sjaldan hafa raf­tónar bland­ast klass­ísk á jafn fagran máta.

Aphex Twin - Syro


End­ur­koma raf­goðs­ins Aphex Twin var ein stærsta tón­list­ar­frétt árins og biðu margir með önd­ina í háls­inum eftir Syro, hans fyrsta verki síðan árið 2001. Þrátt fyrir háar vænt­ingar féll platan vel í geðið hjá aðdá­endum tón­list­ar­manns­ins sem er greini­lega hvergi nærri hættur.

Ariel Pink – Pom Pom


https://www.youtube.com/watch?v=YS87mPfD_yI

Ariel Pink gefur hljóm­sveit sinni Haunted Graffiti frí á Pom Pom og heyr­ist það glöggt á breyttum hljóm á plöt­unni sem er tals­vert frá­brugðin plöt­unum á undan. Það kemur þó ekki að sök; platan er stór­skemmti­legur sýru-popp­bræð­ingur eins og for­sprakk­anum er einum lagið.

Avi Buffalo – At Best Cuckold


https://www.youtube.com/watch?v=jaFh5AqGo0g

Lág­stemmdi ljúf­ling­ur­inn Avigdor Zahner-Isenberg byrj­aði að semja tón­list í menntó sem Avi Buffalo. Nokkrum árum og ágætis plötu síðar sendir hann loks frá sér sína aðra plötu. At Best Cuckold er metn­að­ar­full og flott plata, með skemmti­lega texta og sér­staka rödd Avi í for­grunni.

Blonde Redhead - Barragán


https://www.youtube.com/watch?v=lNio2xDwTYg

Hið töfr­andi tríó Blonde Redhead hefur sætt gagn­rýni fyrir síð­ustu plötur sínar sem hafa þótt lak­ari en hinar stór­kost­legu Melody of Certain Damaged Lemons og Misery is a Butt­er­fly. Und­ir­rituð er ein þess­ara gagn­rýn­is­radda og því kom skemmti­lega á óvart að heyra Barragán – sem er besta verk sveit­ar­innar í heil tíu ár.

Bonnie ‘Prince’ Billy – Singer’s Grave a Sea of Tongues


http://youtu.be/tIWWsreneG8

Will Oldham er margt til lista lagt og hefur hann verið iðinn við að spreyta sig á mis­mun­andi tón­list­ar­stefnum í fjöl­mörg ár sem hann gefur svo jafnan út án þess að aug­lýsa plötur sínar af ein­hverju viti. Singer’s Grave a Sea of Tongues sam­anstendur að miklu leiti af end­ur­gerð laga af plöt­unni Wolfroy Goes To Town sem kom út árið 2011, en hér öðl­ast þau betra líf og nýju lögin eru með því betra sem Oldham hefur sent frá sér.

The Budos Band – Burnt Offering


https://www.youtube.com/watch?v=tO8CAjZYAY4

Daptones hljóm­sveitin Budos Band er í sér­flokki þegar kemur að nýstár­legri heims­tón­list eins og Burnt Offering er skýrt dæmi um. Á plöt­unni kemur í ljós dekkri hlið á sveit­inni sem fer henni afar vel. Stutt er í til­rauna­mennsku og spil­a­gleðin er við völd.

Caribou – Our Love


https://www.youtube.com/watch?v=BI2Et19vDCM

Raf­sveitin Caribou með Dan Snaith fremst í flokki hefur heldur betur fest sig í sessi. Eftir hina frá­bæru Swim sem kom út árið 2010 er Our Love engu síðri – jafn­vel betri og er þá mikið sagt. Hrika­lega ávana­bind­andi plata með epískum smellum.

Dean Blunt – Black Metal


https://www.youtube.com/watch?v=YQfwPziK-SA

Dean Blunt er með skrítn­ari tón­list­ar­mönnum okkar tíma. Fyrrum Hype Williams-liðs­mað­ur­inn skrif­aði undir samn­ing við Rough Trade fyrir útgáfu Black Metal og er útkoman hreint út sagt mögnuð. Platan er laus við til­gerð og laga­smíð­arnar eru ein­stakar og frá­bærar í kæru­leys­is­legum bún­ing sínum.

FKA twigs – LP1


https://www.youtube.com/watch?v=3yDP9MKVhZc

FKA twigs er tví­mæla­laust ein skærasta stjarna árs­ins og hefur frægð­ar­sól hennar risið afar hratt síðan hún sendi frá sér stutt­skífu á síð­asta ári. Þó er rauður þráður í fjaðrafok­inu – tón­list FKA twigs er óneit­an­lega hríf­andi og ferskur blær inn í raf­poppið sem tröll­ríður öllu þessa dag­ana.

Flying Lotus – You’re Dead


https://www.youtube.com/watch?v=2lXD0vv-ds8

Steven Ellison, eða Flying Lotus, sendir frá sér sitt besta verk til þessa með hinni stjörnum prýddu You’re Dead þar sem hann tæklar við­fangs­efnið dauð­ann á sér­stak­lega vel heppn­aðan hátt.

Gooms – Beyond Life


https://soundcloud.com/gooms4life/gooms-trancers

Hin gjör­sam­lega óþekkta sveit Gooms kemur frá Danmörku og færir okkur kæru­leys­is­legan popp­rokk­bræð­ing sem minnir á flottar sýru­sveitir á borð við Animal Collective. Sveit sem vert er að fylgj­ast með á næstu miss­erum.

Jenny Hval & Susanna – Meshes of Voice


https://www.youtube.com/watch?v=FaZo5QK0R4A

Norsku tón­list­ar­kon­urnar Jenny Hval, einnig þekkt sem Rockettothesky, & Susanna sam­ein­uðu krafta sína og sendu frá sér hina töfr­andi Meshes of Voice. Það er ein­hver dulúð­legur kraftur í tón­list­inni sem þær skapa, sem er ólík flestu sem hefur heyrst áður og eru radd­irnar kvenn­ana engu líkar.

Old Man Gloom – The Ape Of God I & II


https://www.youtube.com/watch?v=sF2YF-ySHpw

https://www.youtube.com/watch?v=sF2YF-ySHpwOld Man Gloom er eins­konar súpergrúppa harð­kjarna­sen­unnar í Boston og standa undir því nafni. The Ape Of God er ein þéttasta rokk­plata árs­ins. Eða, tvær þétt­ustu plötur árs­ins… I & II. Sveitin ákvað nefni­lega að rugla í aðdá­endum sínum og gagn­rýna um leið ólög­legt nið­ur­hal með því að senda fyrst frá sér ranga útgáfu af plöt­unni fyrir útgáfu­dag. Hvað sem því líður er tón­listin vel áheyrn­ar­innar virði.

Pallbearer – Foundations of Burden


https://www.youtube.com/watch?v=LTTt-ikVJSk

Pall­be­arer feta línu milli hinna ýmsu tón­list­ar­stefna svo úr verður flottur bræð­ingur metals og sveim­rokks. Foundations of Burden er flott plata sem kinkar kolli til for­feðra þung­arokks­ins en setur í leið­inni tón­inn fyrir það sem koma skal.

Vashti Bunyan - Heartleap


https://www.youtube.com/watch?v=QJ22AaQAIvY

Vashti Bunyan hefur stundum verið kölluð guð­móðir þjóð­lagatón­listar, en saga hennar sem tón­list­ar­konu er ein­stök og ættu sem flestir að skoða hana. Heart­leap, hennar fyrsta plata í langan tíma, er ein­stak­lega fögur og brot­hætt – tíma­laust meist­ara­stykki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár