Umboðsmaður fékk afstöðu Hönnu Birnu til nýrrar ábendingar

Umboðs­maður Alþingis hefur lokið athugun sinni á ábend­ingu sem barst í nóv­em­ber í tengslum við frum­kvæð­is­at­hugun emb­ætt­is­ins á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, frá­far­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Umboðs­manns Alþingis.

Þar segir að athugun umboðs­manns hafi falist í því að afla upp­lýs­inga vegna ábend­ing­ar­innar og fá afstöðu Hönnu Birnu til þeirra. Á næstu dögum verði unnið úr þeim og að frá­gangi á nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­innar. Ekki liggur enn fyrir hvenær unnt verður að birta nið­ur­stöður Umboðs­manns um sam­skipti Hönnu Birnu og Stefáns vegna rann­sóknar lög­reglu á leka­mál­inu svo­kall­aða. Samkvæmt frétt umboðs­manns er von­ast til að það verði sem fyrst.

Ekki hefur komið fram hvað felst í ábend­ing­unni sem Umboðs­manni Alþingis barst á dög­unum. Í til­kynn­ingu frá honum í síð­ustu viku kom hins vegar fram að hún teng­ist ekki sam­skiptum Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns inn­an­rík­is­ráð­herra, og Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, varð­andi perónu­legar upp­lýs­ingar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey í tölvu­pósti við upp­haf leka­máls­ins. Því er ljóst að um nýjar upp­lýs­ingar er að ræða er varða aðkomu Hönnu Birnu að mál­inu.

Eins og kunn­ugt er skoðar nú Per­sónu­vernd sér­stak­lega sam­skipti Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar, en frestur til að skila umbeðnum gögnum til stofn­un­ar­innar rann út í gær.

Upp­haf­lega hugð­ist Umboðs­maður Alþingis birta nið­ur­stöður sínar í þar síð­ustu viku, en dráttur varð á birt­ingu nið­ur­stöð­unnar eftir að umrædd ábend­ing barst emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár