Segir ummæli Jóns Steinars ekki svaraverð

Björg Thoraren­sen, pró­fessor við Laga­deild Háskóla Íslands, segir ummæli Jóns Steinars Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sem hann lét falla í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni á sunnu­dag ekki svara­verð.

Jón Steinar tengdi það sem hann kallar aðfar­irnar að Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra vegna leka­máls­ins svo­kall­aða, við gremju rétt­ar­fars­nefndar í kjöl­far þess að Hanna Birna skip­aði þriggja manna nefnd til að skrifa frum­varp að nýjum dóm­stóla­lögum. Jón Steinar sagði í áður­nefndu við­tali að Eiríkur Tómasson, hæsta­rétt­ar­dóm­ari og for­maður rétt­ar­fars­nefndar, og aðrir nefnd­ar­menn hefðu „tryllst“ vegna þessa, þar sem þeim hafi fund­ist að ráð­herra hefði snið­gengið þá við skipun nefnd­ar­innar.

Hæstaréttardómarar sem öllu vilja ráða


Þá taldi Jón Steinar frá­leitt að hæsta­rétt­ar­dóm­arar eigi sæti í rétt­ar­fars­nefnd Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, þeirra hlut­verk ætti fyrst og síð­ast að fel­ast í því að sinna sínum störfum í Hæsta­rétti Íslands.

Samkvæmt upp­lýs­ingum af heima­síðu Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er rétt­ar­fars­nefndin inn­an­rík­is­ráð­herra til ráð­gjafar um samn­ingu frum­varpa og ann­arra reglna á sviði rétt­ar­fars, semur frum­vörp og aðrar reglur að beiðni ráð­herra á því sviði og í sam­ræmi við áætlun og áherslur ráð­herra, og veitir umsagnir um frum­vörp og aðrar til­lögur er varða rétt­ar­far.

Eiríkur Tómasson sagði í sam­tali við Kjarnann í gær, að hann ætli ekki að tjá sig um ummæli Jóns Steinars. „Ég ætla ekki að fara að standa í orða­hnipp­ingum við Jón Steinar.“

Sakaði háskólaprófessor um óheilindi


Í áður­nefndu sjón­varps­við­tali full­yrti Jón Steinar að inn­an­rík­is­ráð­herra hefði, með skipun nefnd­ar­innar sem á að skrifa frum­varp að nýjum dóm­stóla­lögum, komið við kaun­inn á þeim sem öllu vilji ráða í dóms­málum lands­ins.

„Hanna Birna gerði það, sem að vissir menn töldu að hún ætti ekki að gera, hún skip­aði nefnd ein­hvers fólks í það að skrifa nýtt frum­varp að dóm­stóla­lögum, og ákveðnir menn sem stjórna og vilja ráða öllu í dóms­mál­unum, þeir urðu reiðir. Og svo tók ég eftir því í fyrra­sumar, að það voru tekin við­töl við fólk sem tengd­ist þess­ari klíku mjög sko, meðal ann­ars pró­fessor í Háskóla Íslands, sem vill svo til að er eig­in­kona for­seta Hæsta­réttar, og hvað hafði hún að segja: að ráð­herr­ann yrði að fara frá, út af þessu máli. [...] Þetta setur að mér óhug, þetta er ekki eðli­legt.“

Aðspurður um hvort Jón Steinar hafi átt við Björgu Thoraren­sen, pró­fessor við Laga­deild Háskóla Íslands, með orðum sínum kvað hann svo vera. Björg er eig­in­kona Markúsar Sig­ur­björns­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara og for­seta Hæsta­réttar Íslands.

Í skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans til Bjargar, um hvort hún hygg­ist bregð­ast við ummælum Jóns Steinars, svar­aði hún: „Sæll vertu, nei það hef ég ekki, enda ekki svara vert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár