Lekamálið: Álit umboðsmanns Alþingis kemur ekki í dag

Nið­ur­staða frum­kvæð­is­at­hug­unar Umboðs­manns Alþingis, um sam­skipti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og Stefáns Eiríks­sonar þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, verður ekki birt í dag. Þetta kemur fram í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Upp­haf­lega hugð­ist umboðs­maður birta nið­ur­stöðu sina í síð­ustu viku, en í til­kynn­ingu frá emb­ætt­inu þann 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, kemur fram að umboðs­manni hafi borist ábend­ing um til­tekið atriði í tengslum við athug­un­ina sem nú sé verið að kanna. Þá er tekið sér­stak­lega fram í til­kynn­ing­unni að þar sé ekki um að ræða sam­skipti Gísla Freys Val­dórs­sonar, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns inn­an­rík­is­ráð­herra, og Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, sem hafi verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum.

Í til­kynn­ing­unni, frá 19. nóv­em­ber, segir enn­fremur að af þessum sökum hafi ekki verið unnt að birta nið­ur­stöð­urnar á til­settum tíma, en þess sé vænst að athugun á ábend­ingum ljúki á næstu dögum. Þá sagð­ist Umboðs­maður Alþingis von­ast til þess að unnt verði að birta nið­ur­stöður frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­innar í þess­ari viku. Nú er ljóst að frek­ari dráttur verður á birt­ingu nið­ur­stöð­unnar, að því er fram kemur í áður­greindu svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fram­halds­fyr­ir­spurn Kjarnans til Umboðs­manns Alþingis, um hvenær sé von á nið­ur­stöðu hans í mál­inu, hafði ekki verið svarað við vinnslu þess­arar fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár