Hanna Birna gæti orðið ráðherra á ný síðar á kjörtímabilinu

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, ormaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segja báðir að til greina komi að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir taki aftur við ráð­herra­emb­ætti í rík­is­stjórn þeirra síðar á kjör­tíma­bil­inu. Hanna Birna sagði af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra í gær. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Aðspurður hvort Hanna Birna verði ráð­herra á ný svarar Bjarni: „Það kemur allt til greina í póli­tík. Það er eitt sem er alveg öruggt að það kemur allt til greina í þeim efnum“. Sig­mundur Davíð tekur í svip­aðan streng og seg­ist vel geta séð fyrir sér að Hanna Birna verði ráð­herra á ný á kjör­tíma­bil­inu. „Það er alls ekk­ert loku fyrir það skotið að Hanna Birna verði ráð­herra aftur. Ég gæti mjög vel séð það ger­ast,“ segir Sig­mundur Davíð í sam­tali við Morg­un­blaðið.

„Auðvitað gerðum við öll mistök"


Hanna Birna sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hún fór yfir ástæður þess að hún sagði af sér. Að öðru leyti hefur hún ekki viljað ræða málið við fjöl­miðla. Í Frétta­blað­inu í dag er greint frá því að hún hafi yfir­gefið inn­an­rík­is­ráðu­neytið á átt­unda tím­anum í gær.

Nokkru áður hafi Friðjón R. Frið­jóns­son, annar eig­andi almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, og Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, komið í ráðu­neytið. Þegar Hanna Birna yfir­gaf ráðu­neytið sagði hún við fjöl­miðla­menn sem biðu hennar: „Auðvitað gerðum við öll mis­tök. En ekki þannig að það sé eitt­hvað sem ég þurfi að fara yfir. Núna ætla ég bara að sinna fólk­inu mínu og er búin að eiga erf­iðan dag hér í ráðu­neyt­inu. Takk fyrir að bíða“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár