Hanna Birna hættir vegna tortryggni og vantrausts

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra hefur til­kynnt Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, form­lega um að hún vilji hætta sem ráð­herra og hún sæk­ist ekki lengur eftir því að gegna emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fengu vit­neskju um afsögn hennar síð­degis.

Í yfir­lýs­ingu sem Hanna Birna hefur sent frá sér, segir að hún hafi frá upp­hafi Leka­máls­ins reynt að vanda til verka og alltaf brugð­ist við með þeim hætti sem hún hafi talið satt og rétt. Hún hafi ítrekað sagt frá því sem hún hafi getað sagt um málið, og reynt að skýra það með eins sönnum hætti og henni hafi verið unnt. Hún hafi látið fram­kvæma sér­staka skoðun í ráðu­neyt­inu, hafi orðið við öllum beiðnum lög­reglu um gögn og upp­lýs­ingar en um leið reynt að vernda mann­rétt­indi og trúnað við aðra en þá sem rann­sóknin beind­ist að. Þá hafi hún svarað ítrek­uðum spurn­ingum umboðs­manns Alþingis og lagt ríka áherslu á að vinna skýr­ari verk­lags­reglur og örygg­is­ferla til að bregðst við slíkum málum og kærum. Hún hafi vikið aðstoð­ar­manni sínum frá störfum tíma­bundið og síðar sagt sig frá verkum dóms­mála­ráð­herra. Þá hafi hún um leið og hún fékk fyrst stað­festar upp­lýs­ingar um hvernig í mál­inu lá, rekið aðstoð­ar­mann sinn taf­ar­laust. Hún hafi ítrekað tjáð sig um að hún hafi ekki blandað sér með óeðli­legum hætti í rann­sókn Leka­máls­ins og það hafi Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri, rík­is­sak­sókn­ari, rann­sak­endur og loks hér­aðs­dómur stað­fest með nið­ur­stöðum sínum.

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni: „Und­an­farna daga hef ég hins vegar skynjað að ekk­ert af þessu skiptir raun­veru­lega máli. Tor­tryggni og van­traust vegna máls­ins eru enn til staðar og ákveðnir aðilar og öfl geta og munu áfram halda uppi efa­semdum og ásök­unum vegna þess. Það er því miður búið að draga of marga inn í þessa umræðu ítrekað og með ósann­indum, þar með talið nú síð­ast ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, núver­andi lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og aðra emb­ætt­is­menn. Þau, ekki frekar en ég, höfðu vit­neskju um brotið. Nú er mál að linni.“

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á dög­unum, fyrir að leka per­sónu­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla í nóv­em­ber á síð­asta ári. Hann hefur ítrekað þver­neitað að Hanna Birna hafi verið við­riðin málið.

Hægt er að lesa yfir­lýs­ingu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár