Lögreglustjórinn hringdi í Gísla Frey sama dag og lekafréttir birtust

Þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum hringdi í Gísla Frey Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, að morgni 20. nóv­em­ber 2013. Gísli hringdi sömu­leiðis í lög­reglu­stjór­ann þennan sama­dag og fékk tölvu­póst frá emb­ætti hennar um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. Þetta er full­yrt í DV í dag og sagt að sím­tölin hafi alls verið þrjú.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var á þeim tíma lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum. Hún var skipuð í starf lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af Hönnu Birnu í júlí síð­ast­liðnum án aug­lýs­ingar í kjöl­far þess að fyr­ir­renn­ari hennar, Stefán Eiríks­son, sagði starfi sínu lausu. Í aðdrag­anda upp­sagnar Stefáns hafði hann orðið fyrir ítrek­uðum afskiptum af hendi inn­an­rík­is­ráð­herra vegna rann­sóknar á leka­mál­inu.

[caption id="attachment_12277" align="aligncenter" width="624"] Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum. Hún var skipuð lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í sumar af Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur.[/caption]

Gísli Freyr hefur játað að hafa lekið minn­is­blaði með upp­lýs­ingum um Tony Omos til Frétta­blaðs­ins og mbl.is sem birt­ust í miðl­unum þennan saman dag, 20. nóv­em­ber. Áður en minn­is­blað­inu var lekið var búið að bæta upp­lýs­ingum við það um Omos. Gísli Freyr var í síð­ustu viku dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lek­ann.

Í DV í dag kemur fram að blaðið reyndi að hafa sam­band við bæði Sigríði Björn og Gísla Frey til að spyrja þau út í málið í gær í gegnum tölvu­póst en að engin svör hefðu borist við spurn­ingum blaðs­ins þegar það fór í prentun.

Í sam­tali við RÚV seg­ist Gísli Freyr ekki muna hvort hann hafi rætt um Tony Omos í sím­tölum sem hann átti við Sigríði að morgni 20. nóv­em­ber. Þá segir hann að sím­tölin hafi verið tvö, ekki þrjú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár