Hanna Birna ekki aftur í dómsmálin, ekki eindreginn stuðningur

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra mun lík­ast til ekki taka aftur við mála­flokk dóms­mála í rík­is­stjórn­inni, stuðn­ingur við áfram­hald­andi setu hennar sem ráð­herra er ekki ein­dreg­inn í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks og staða leka­máls­ins veldur mörgum þing­mönnum hans þungum áhyggjum. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að Hanna Birna muni að öllum lík­indum ekki snúa aftur í dóms­mála­ráðu­neytið. Það hafi verið bráða­birgða­ráð­stöfun að færa mála­flokk­inn yfir til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og nú þurfi að setj­ast yfir það hvernig honum verði fyr­ir­komið út kjör­tíma­bilið.

Frétta­blaðið segir að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi verið áhyggju­fullir á þing­flokks­fundi í gær vegna þeirrar stöðu sem er komin upp vegna leka­máls­ins.Þar segir:„Þing­flokk­ur­inn kom saman á fundi þar sem játn­ing Gísla Freys Val­dórs­sonar, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu, og staða hennar í kjöl­farið bar hæst. Eftir fund­inn lýsti Bjarni yfir fullum stuðn­ingi við Hönnu Birnu. Bjarni segir hana hafa fengið mik­inn stuðn­ing í þing­flokknum og hafa stuðn­ing hans óskor­aðan til að halda áfram störfum sínum. Aðspurður hvort allir þing­menn flokks­ins hafi lýst yfir stuðn­ingi við Hönnu svarar Bjarni: „Það voru þing­menn sem tóku ekki til máls á fund­inum. Við getum orðað það þannig."[...]Aðspurður hvort allir þing­menn flokks­ins hafi lýst yfir stuðn­ingi við Hönnu Birnu sagði Bjarni að það hefðu verið „þing­menn sem tóku ekki til máls. Við skulum orða það þannig.""

Í frétt Morg­un­blaðs­ins um leka­málið í dag er því einnig haldið fram að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi áhyggjur af mál­inu. Þar segir einnig að Bjarni Bene­dikts­son styðji Hönnu Birnu og að hún njóti óskor­aðs trausts hans. Innan þing­flokks­ins sé „breiður stuðn­ingur" stuðn­ingur við að hún haldi störfum sínum áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár