Ákæruvaldið sendir Hönnu Birnu tóninn

Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, segir dóm­inn yfir Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, hafa verið sam­kvæmt vænt­ingum. Eins og fram hefur komið hlaut Gísli Freyr átta mán­aða fang­els­is­dóm í morgun vegna leka­máls­ins svo­kall­aða, en dóm­ur­inn kemur ekki til fulln­ustu haldi Gísli skil­orð í tvö ár.

Gísli ját­aði sekt sína í mál­inu fyrir Hönnu Birnu í gær, og síðar fyrir dómi í morgun. Hann segir ákvörðun sína um að játa sekt sína í mál­inu ekki til­komna vegna nýrra sönn­un­ar­gagna sem Rík­is­sak­sókn­ari gerði verj­anda Gísla við­vart um á mánu­dag­inn. Sér­stakur hug­bún­aður sem lög­regla keyrði á tölvu Gísla um helg­ina, þykir sanna að Gísli hafi með óyggj­andi hætti sent fjöl­miðlum trún­að­ar­upp­lýs­ingar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos í nóv­em­ber á síð­asta ári. Gísli hefur fram til þessa neitað sök í mál­inu.

Efaðist aldrei um að sakfellt yrði í málinu


Í sam­tali við Kjarnann seg­ist Helgi Magnús aldrei hafa efast um að sak­fellt yrði í mál­inu, þrátt fyrir að ný sönn­un­ar­gögn í mál­inu hafi ekki litið dags­ins ljós fyrr en um helg­ina. "Miðað við þau sönn­un­ar­gögn sem lágu fyrir, og við byggðum ákæruna á, hefðu þau dugað til þess. Það var auð­vitað mat ákærða hvort hann vildi láta á þetta reyna fyrir dómi, en það var aug­ljóst að eftir að skjalið fannst loks í tölv­unni hans, sem við höfðum ekki fundið fyrr af tækni­legum ástæðum, að þá væri nú fokið í flest skjól með vörn hans. Játning hans kemur í beinu fram­haldi af því að ég gerði verj­anda við­vart um skjalið og sendi honum afrit af því. Ákærði þekkir skjalið og mátti búast við því að það fynd­ist."

Helgi Magnús vildi ekki svara því að svo stöddu hvort emb­ættið muni áfrýja dómnum til Hæsta­réttar. "Það hefur mikið gengið á í þessu máli og því miður hafa verið uppi raddir um að emb­ættið hafi gengið ein­hverra erinda og annað slíkt. Það spretta alltaf upp ein­hverjir spek­ingar sem hafa skoðun á þessum málum, hvort vísa eigi þeim frá eða hverjar hvatir ákæru­valds­ins eru, en það er mjög baga­legt ef að umfjöllun um svona mál fer í þá átt að grafa undan trú­verð­ug­leika eða trausti fólks á ákæru­vald­inu."

[caption id="attachment_11830" align="aligncenter" width="1024"] Gísli Freyr Val­dórs­son við dóms­upp­kvaðn­ingu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun.[/caption]

Mikilvægt að allir sitji við sama borð


Aðspurður um hvort hann teldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra hafa reynt að grafa undan trú­verð­ug­leika Rík­is­sak­sókn­ara í mál­inu, svar­aði Helgi Magnús: "Ég vil ekki fara svo djúpt í þessa umræðu, en þið þekkið þessa umræðu. Þið þekki skrif og þið þekkið ráðna ráð­gjafa og umfjöllun þeirra um þetta mál, og hvernig þeir hafa mat­reitt málið. Þá þekkið þið líka umræðu um að það hafi vegið gengið of langt í því að hald­leggja tölvur og leita í tölvum, að það hafi verið ein­hvers konar inn­grip sem hafi verið óeðli­legt. Það er algjör­lega eðli­legt að mál sem snúa að sak­born­ingi á þessu stigi, af þessu kalí­beri ef ég má orða það svo, að hann lúti eins og aðrir sak­born­ingar sömu reglum um rann­sókn og við getum ekki gert grein­ar­mun á Jóni og Séra Jóni." Þá sagði Helgi Magnús að leit lög­reglu í tölvu hafi einmitt stuðlað að því að sönn­ung­ar­gagnið fannst sem kom fyrr­greindri atburð­ar­rás af stað.

[quote font="0" align="right"]Og það hefur komið fram í öðrum málum, að það er verið að álykta á flokks­ráðs­fundum eða eitt­hvað slíkt, um að það eigi að fella niður ákærur í ein­hverjum málum. Hvað er það?"[/quote]

Þá sagði Helgi Magnús aðspurður um hvort hann teldi inn­an­rík­is­ráð­herra hafa gengið of hart fram í mál­inu: "Ég held ég láti það bara vera að vera með ein­hver komment á það. En þið þekkið umræð­una, hún er víðar og er í öðrum málum. [...] Og það hefur komið fram í öðrum málum, að það er verið að álykta á flokks­ráðs­fundum eða eitt­hvað slíkt, um að það eigi að fella niður ákærur í ein­hverjum málum. Hvað er það? Afskipti af ákæru­valdi eru jafn alvar­leg og afskipti af dóms­valdi. [...] Það verða aldrei nein saka­mál nema ákæru­valdið ákæri, og þær ákvarð­anr sem ákæru­valdið tekur um ákærur eru afdrifa­ríkar vissu­lega, en þær eru líka grund­völlur þess að ein­hver maður verði nokkurn tím­ann dæmdur fyrir refsi­verða hátt­semi. Dóm­stólar taka ekk­ert slíkt upp hjá sjálfum sér."

Ákveðinn manndómur fólginn í ákvörðun Gísla


"Mér finnst ákveð­inn mann­dómur í þessu sem Gísli hefur nú ákveðið að gera. Kannski hefði hann átt að gera þetta fyrr, en það er mann­dómur fólg­inn í því að ákveða að taka bara slag­inn núna og ljúka mál­inu frekar en að þræl­ast í gegnum aðal­með­ferð með vitnum og öllum slíkum óþæg­indum og kannski er ekk­ert algjör­lega úr vegi að hann njóti þess eitt­hvað við ákvörðun refs­ingar," segir Helgi Magnús. Ákæru­valdið krafð­ist þess að Gísli yrði dæmdur í eins árs fang­elsi, en benti á að brot hans gæfi til­efni til fang­els­is­vistar að allt að þremur árum miðað við ásetn­ing hans að hafa áhrif á umræðu.

[quote font="0" align="right"]"Ég er bara aðeins að reyna að nota tæki­færið til þess að skýra hlut­verk ákæru­valds­ins og mik­il­vægi þess að það fái frið til að vinna og hafi traust til að sinna sínum verk­efnum."[/quote]

"Það liggur fyrir nið­ur­staða, það liggur fyrir að ákæra Rík­is­sak­sókn­ara var rétt­mæt og við þurfum ekki frek­ari stað­fest­ingu á því að þetta var ekki ein­hvers konar póli­tískur leikur eða neitt slíkt eins og ein­hverjir létu eftir sér að ýja að."

Mikilvægt að tryggja sjálfstæði ákæruvaldsins


Helgi Magnús segir boð­aðan nið­ur­skurð á fjár­fram­lögum til ákæru­vald­ins mikið áhyggju­efni. "Sjálf­stæðið er nátt­úru­lega ekki mikið ef að til­teknir mála­flokkar eða mál eru sett í ein­hver konar hefti út af pen­ingum. Það er fjár­magnið sem ræður því hvort sjálf­stæði ákæru­valds­ins er tryggt eins og dóm­stóla. Það hefur því miður verið þannig að það virð­ast vera meiri pen­ingar til til að stofna ein­hverjar nýjar stofn­anir og stofur út um hvipp­inn og hvapp­inn, heldur en að hlúa að grunn­þáttum rík­is­valds­ins eins og lög­reglu, dóm­stólum og ákæru­valdi. [...] Við horfum fram á sam­drátt, og við horfum fram á drátt á málum með mildun refs­inga fyrir sak­born­inga og auð­vitað brot á þeirra rétti, sem er tryggður í mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og stjórn­ar­skrá, um að þeir fái með­ferð sinna mála. Það er auð­vitað ákvörðun stjórn­mála­mann­anna hvort þeir vilja að það nái fram að ganga eða hvort við eigum að fara sömu leið og á spít­öl­unum og það verði bara langir biðlistar."

Aðspurður um hvort Helgi Magnús eigi við boð­aðan nið­ur­skurð á fjár­heim­ildum til emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara með orðum sínum, sagði hann svo ekki vera. Hann væri að tala á almennum nótum. "Ég er bara aðeins að reyna að nota tæki­færið til þess að skýra hlut­verk ákæru­valds­ins og mik­il­vægi þess að það fái frið til að vinna og hafi traust til að sinna sínum verk­efnum. Og þá eins líka að almenn­ingur geti treyst því að við sinnum þeim verk­efnum sem við erum að sinna, af sömu elju­semi og áhuga hvort sem það er Jón eða Séra Jón sem á í hlut og við beitum þeim úrræðum sem lög gera ráð fyrir. Það er ágætt að allir viti það og geti treyst því."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár