Endanlega staðfest um helgina að Gísli Freyr lak skjali í lekamáli

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, kom fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í morgun og ját­aði brot sín í leka­mál­inu svo­kall­aða. Aðspurður af dóm­ara hvort ný sönn­un­ar­gögn lög­reglu í mál­inu hefðu breytt afstöðu hans til sak­ar­gifta, kvað Gísli svo ekki vera, en afstaða hans hefði engu að síður breyst.

Í máli Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar kom fram að lög­regla hefði um helg­ina end­an­lega fengið stað­fest að Gísli hafi lekið skjal­inu um Tony Omos til fjöl­miðla. Þá hefði lög­regla keyrt sér­stakan hug­búnað á tölvu Gísla, sem hefði stað­fest brot Gísla í leka­mál­inu. Helgi hafði þá sam­band við lög­mann Gísla sem gerði skjól­stæð­ingi sínum við­vart.

Helgi Magnús full­yrti fyrir dómi að ný sönn­un­ar­gögn hefðu sýni­lega breytt afstöðu Gísla til sak­ar­gifta, og því ætti það ekki að vera honum til refsim­ild­unar að stíga fram og játa sekt sína á þessu stigi máls. Rík­is­sak­sókn­ari fer enn fram á að Gísli verði dæmdur í eins árs fang­elsi.

Verjandi Gísla Freys, Ólafur Garð­ars­son, sagði fyrir dómi að málið hefði legið þungt á skjól­stæð­ingi sínum og á síð­ustu dögum hefði hann sokkið dýpra og dýpra. Á mánu­dag­inn hafi Gísli svo til­kynnt lög­manni sínum að hann hygð­ist játa brot sín, hann gæti ekki lifað með mögu­legum sýknu­dómi vit­andi að hann væri sekur. Þá hafi hann ekki viljað draga vini sína og sam­starfs­menn fyrir dóm í máli þar sem hann hefði gerst brot­legur við lög. Þá gagn­rýndi verj­andi Gísla lög­reglu fyrir að halda áfram lög­reglu­rann­sókn eftir að ákæra í mál­inu var gefin út.

Dómur verður upp kveð­inn í mál­inu klukkan ell­efu.

Játaði brot sín fyrir Hönnu Birnu í gær


Gísli Freyr ját­aði í gær fyrir sak­sókn­ara og Hönnu Birnu að hafa lekið minn­is­blaði um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Frétta­blaðs­ins og mbl.is í nóv­em­ber á síð­asta ári, í kjöl­far þess að aðal­með­ferð í saka­máli Rík­is­sak­sókn­ara á hendur honum var frestað í gær. Hanna Birna birti síð­degis í gær yfir­lýs­ingu þar sem hún sagði trún­að­ar­brot Gísla gagn­vart sér, ráðu­neyt­inu og almenn­ingi vera algjört og alvar­legt. Sér í lagi sökum þess að Gísli hafi ítrekað haldið fram sak­leysi sínu, ekki aðeins gagn­vart yfir­völdum og fjöl­miðlum, heldur einnig gagn­vart sam­starfs­fólki sínu og yfir­mönnum í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Þá sagði Hanna Birna í yfir­lýs­ingu sinni í gær: "Sú stað­reynd að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður minn hafi brotið svo al­var­lega á trún­aði gagn­vart mér sem ráð­herra, sem ít­rekað hef haldið uppi vörn­um fyr­ir hann í því trausti að hann hefði skýrt mér og öðrum satt og rétt frá, kem­ur mér al­gjör­lega í opna skjöldu og er þyngri byrði fyr­ir mig en ég get lýst í fáum orðum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár