Alþjóðleg samtök blaðamanna fordæma Þóreyju Vilhjálmsdóttur

Alþjóð­leg sam­tök blaða­manna, International Press Institute, for­dæma Þóreyju Vil­hjálms­dóttur, aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrir að krefj­ast fang­els­is­dóms yfir blaða­mönnum DV, þeim Jóni Bjarka Magn­ús­syni og Jóhanni Páli Jóhanns­syni. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu blaða­manna­sam­tak­anna, sem birt­ist í gær.

Jón Bjarki og Jóhann Páll full­yrtu í frétt DV að Þórey væri starfs­maður B hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem væri grun­aður af lög­reglu­yf­ir­völdum um að hafa lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum í leka­mál­inu svo­kall­aða. DV dró frétt­ina sam­dæg­urs til baka og bað Þóreyju afsök­unar á mis­tök­unum.

Scott Griffen, sér­stakur ráð­gjafi sam­tak­anna varð­andi rit­stjórn­ar­legt frelsi, segir í áður­nefndri frétt að sam­tökin séu slegin yfir kröfu Þóreyjar, sem sé allt of harka­leg miðað við til­efnið. "Að opin­ber starfs­maður sæk­ist eftir fang­els­is­dóm, eða í raun refs­ingar, fyrir eitt­hvað sem virð­ist hafa verið heið­ar­leg mis­tök í tengslum við alvar­lega rann­sókn, gefur ekki til kynna að fjöl­miðlar njóti virð­ingar sem varð­hundar almenn­ings."

Þá hvetur Griffen íslensk stjórn­völd til að end­ur­skoða meið­yrða­lög­gjöf­ina á Íslandi, til að koma í veg fyrir mis­notkun hennar og mögu­leg áhrif til þögg­unar í fjöl­miðla­sam­fé­lag­inu. Við end­ur­skoðun lög­gjaf­ar­innar verði að huga að því hún verndi blaða­menn frá lög­sóknum, svo lengi sem þeir hafi unnið í góðri trú og farið að siða­reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár