Íslandsbanki staðfestir vilja til að skrá bankann á markað erlendis

Eigendur Íslands­banka stefna að því að tví­skrá bank­ann á markað. Hluta­bréf bank­ans yrðu þá skráð á markað á Íslandi ann­ars vegar og annað hvort á mark­aði í Skand­in­avíu eða London hins vegar. Áður en af því verður þarf þó að liggja fyrir með hvaða hætti hægt verður að greiða arð til nýrra eig­enda, en fjár­magns­höftin hindra slíkar í dag. Þetta hefur Bloomberg eftir Jóni Guðna Ómars­syni, fjár­mála­stjóra Íslands­banka.

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber 2013 að unnið væri að því að tví­skrá Íslands­banka á markað, og að horft væri til Noregs í þeim efnum ásamt því sem vilji var til að skrá bréf bank­ans í íslensku kaup­höll­inni. Þrotabú Glitnis er eig­andi 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka. Stærstu kröfu­hafar hans eru erlendir vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóðir.

„Project Puffin“


Síðan þá hefur slita­stjórnin búið til hóp utan um verk­efnið, sem gengur undir nafn­inu „Project Puffin“. Um miðjan jan­úar síð­ast­lið­inn fór sá hópur í ferð um Osló, Stokk­hólm og Kaup­manna­höfn til að kanna áhuga fjár­festa á því að kaupa hlut í Íslands­banka ef bank­inn yrði tví­skráður. Alls voru haldnir tíu fundir með nokkrum af stærstu bönkum Norð­ur­landa á borð við DnB, Nordea og SEB. Auk þess var fundað með full­trúum kaup­halla.

[quote font="0" align="right"]Um miðjan jan­úar síð­ast­lið­inn fór sá hópur í ferð um Osló, Stokk­hólm og Kaup­manna­höfn til að kanna áhuga fjár­festa á því að kaupa hlut í Íslands­banka ef bank­inn yrði tví­skráður. Alls voru haldnir tíu fundir með nokkrum af stærstu bönkum Norð­ur­landa[/quote]

Þrátt fyrir að fund­irnir hafi fyrst og fremst verið með bönkum þá var ekki verið að stefna að því að þeir yrðu ein­hvers­konar kjöl­festu­fjár­festar sjálfir, heldur myndu safna saman áhuga­sömum fjár­festum. Fund­irnir stað­festu að Osló væri besti stað­ur­inn til að skrá bank­ann, en áður hafði Stokk­hólmur líka verið skoð­aður. Ástæður þessa voru fyrst og fremst þær að fjár­festar í Noregi eru taldir opn­ari fyrir óvenju­legum tæki­færum auk þess sem bankar þar í landi hafa mikla þekk­ingu á kjarna­at­vinnu­vegum Íslend­inga (sjáv­ar­út­vegi, orku og ferða­mennsku). Þeir atvinnu­vegir eru líka uppi­staðan í við­skipta­vina­neti Íslands­banka.

Mjög vel var tekið í hug­myndir um að tví­skrá Íslands­banka á markað og full­trúar bank­anna sem fundað var með töldu að fjár­festar væru orðnir áhættu­sækn­ari en þeir hefðu verið lengi. Þar hafi hjálpað til að fjár­fest­ingar í bönkum sem hafa gengið í gegnum miklar krísur, á borð við Spán og Írland, gafa náð að skila góðri ávöxtun.

Bankinn yrði þá tví­skráður á markað. Stærsti hluti bréfa hans í Kaup­höll­ina í Osló en 10-20 pró­sent á Íslandi.

[caption id="attachment_1461" align="aligncenter" width="723"] Erlendir vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóðir, oft nefndir hrægamma­sjóðir í dag­legu tali, eiga stóran hlut krafna í þrotabú Glitnis. Innan þeirra raða er vilji til að selja Íslands­banka fyrir gjald­eyri, til dæmis með því að skrá bréf bank­ans í erlenda kaup­höll.[/caption]

Ótvíræðir kostir


Íslands­banki virð­ist vera ákjós­an­legur fjár­fest­inga­kostur í augum erlendra fjár­festa, að nokkrum skil­yrðum upp­fylltum. Þar sem vaxta­mögu­leikar Íslands­banka, sem er með 30-40 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á Íslandi, eru litlir þá er fyrst og síð­ast verið að horfa til getu bank­ans til að borga arð. Hann væri hægt að auka með hag­ræð­ingu, til dæmis með því að fækka starfs­fólki og ódýr­ari fjár­mögnun. Erlent eign­ar­hald myndi tryggja slíkt.

Til að ger­legt verði að fara í hluta­fjár­út­boð erlendis er þó talið að liggja verði fyrir und­an­þága fyrir erlendu hlut­haf­anna frá fjár­magns­höftum þess eðlis að þeir geti fengið arð­greiðslur sínar greiddar í erlendum gjald­eyri.

[quote font="0" align="right"]Kost­irnir fyrir Ísland við að skrá banka á markað erlendis eru þónokkrir. Kerf­is­leg áhætta myndi minnka, erlendir banka­ferlar yrðu inn­leiddir og aðgangur að fjár­magni yrði mun ódýr­ari. Auk þess yrði hluti snjó­hengj­unnar, krónu­eigna erlendra aðila, að engu við slíka gjörð[/quote]

Verðið á bank­anum myndi af ein­hverju leyti ráð­ast af áætl­unum um afnám hafta. Ef þau verða áfram við lýði um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð þá gætu erlendir fjár­festar verið til­búnir að borga 0,7 til 0,8 sinnum eigið fé bank­ans fyrir hlutafé í honum. Það er á pari við það virði sem þrotabú Glitnis bók­færir virði hans á. Á bil­inu tíu til 20 pró­sent hans yrði síðan seldur í íslensku kaup­höll­inni og líf­eyr­is­sjóðum og öðrum fjár­festum gert kleift að kaupa bréf fyrir um 15 til 30 millj­arða króna.

Kost­irnir fyrir Ísland við að skrá banka á markað erlendis eru þónokkrir. Kerf­is­leg áhætta myndi minnka, erlendir banka­ferlar yrðu inn­leiddir og aðgangur að fjár­magni yrði mun ódýr­ari. Auk þess yrði hluti snjó­hengj­unnar, krónu­eigna erlendra aðila, að engu við slíka gjörð. Það myndi vera skref í átt að afnámi hafta.

Gefa eftir krónurnar


Kröfu­hafar Glitn­isog Kaup­þings virð­ast hafa sætt sig að þeir fá ekki að skipta íslenskum krónum sem bú þeirra eiga í erlenda gjald­miðla. Þeir vilja hins vegar fá að greiða sér út þær erlendu eignir sem búin eiga enda telja þeir þær ekki hafa nein kerf­is­leg áhrif á íslenskt efna­hags­kerfi.

[quote font="0" align="right"]Kröfu­hafar Glitnis og Kaup­þings virð­ast hafa sætt sig að þeir fá ekki að skipta íslenskum krónum sem bú þeirra eiga í erlenda gjald­miðla. Þeir vilja hins vegar fá að greiða sér út þær erlendu eignir sem búin eiga[/quote]

Með því að selja Íslands­banka fyrir erlendan gjald­eyri myndu kröfu­hafar Glitnis fá gjald­eyri fyrir Íslands­banka, en bók­fært virði hans er um 132 millj­arðar króna. Þá myndi losna um tæpan helm­ing þeirrar snjó­hengju íslenskra króna í eigu útlend­inga sem er til­komin vegna slita Glitnis og skref stígið í átt að afnámi fjár­magns­hafta.

Gangi þetta eftir virð­ast kröfu­hafar til­búnir að gefa eftir þorra krónu­eigna sinna með því að taka lágu til­boði í þær frá t.d. félagi í eigu Seðla­banka Íslands. Það sem eftir myndi standa yrði sett á skulda­bréf sem myndi fjár­magna nýju bank­anna á lágum vöxtum til langs tíma og lækka þar með fjár­magns­kostnað þeirra.

Pólitísk ákvörðun


Hvort af þessu geti orðið veltur þó alfarið á afstöðu íslenskra stjórn­valda. Íslands­banki, sem er í 95 pró­sent eigu þrota­bús Glitnis, verður ekki seldur nema sem hluti af nauða­samn­ings­upp­gjöri. Ekki liggur fyrir hvort föllnu bönk­unum sem óskað hafa eftir und­an­þágum frá fjár­magns­höftum verði leyft að klára nauða­samn­inga eða hvort þeim verði gert að fara í gjald­þrot. Pólitísk ákvörðun um slíkt liggur ekki fyrir og beiðnum þrota­bú­anna um und­an­þágur hefur enn ekki verið svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Höft

FréttirHöft

Slita­stjórn Lands­bank­ans fram­lengir frest um viku

Slita­stjórn þrota­bús Lands­bank­ans hefur fram­lengt loka­dag­setn­ingu á frá­gangi sam­komu­lags milli sín og nýja Lands­bank­ans um leng­ingu á greiðslum af skulda­bréfi upp á þriðja hund­rað millj­arð króna sem nýi bank­inn skuldar þrota­bú­inu. Loka­frestur til að ganga frá sam­komu­lag­inu átti að vera í dag, en hefur nú verið frestað um viku, fram til 31. októ­ber 2014. Vænt­ingar kröfu­hafa Lands­bank­ans stóðu til þess...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár