Slitastjórn Landsbankans framlengir frest um viku

Slita­stjórn þrota­bús Lands­bank­ans hefur fram­lengt loka­dag­setn­ingu á frá­gangi sam­komu­lags milli sín og nýja Lands­bank­ans um leng­ingu á greiðslum af skulda­bréfi upp á þriðja hund­rað millj­arð króna sem nýi bank­inn skuldar þrota­bú­inu. Loka­frestur til að ganga frá sam­komu­lag­inu átti að vera í dag, en hefur nú verið frestað um viku, fram til 31. októ­ber 2014. Vænt­ingar kröfu­hafa Lands­bank­ans stóðu til þess að Seðla­banki Íslands og stjórn­völd myndu gefa svar í dag um hvort und­an­þága feng­ist frá fjár­magns­höftum til að ganga frá sam­komu­lag­inu. Það gekk ekki eftir.

Á heima­síðu sinni seg­ist slita­stjórnin enn bíða þessa að Seðla­banki Íslands og fjár­mála­ráðu­neytið leggi fyrir sig til­lögur um skil­yrði sem þrotabú Lands­bank­ans þurfi að mæta til að und­an­þág­urnar verði veittar. Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að unnið sé stíft að und­ir­bún­ingi fyrstu skrefa í átt að losun hafta þessa dag­anna. Sú vinna mun halda áfram yfir helg­ina. Heim­ildir Kjarnans herma að ekki sé fyrir hendi full póli­tísk sátt innan rík­is­stjórn­ar­innar um hvaða leiðir eigi að fara.

Kjarninn fjall­aði um málið í frétta­skýr­ingu í fyrra­dag.

Sigmundur Davíð hefur lýst andstöðu sinni


Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lýsti yfir and­stöðu við leng­ingu á gjald­dögum skulda­bréfa Lands­bank­ans í ræðu á Alþingi í maí síð­ast­liðnum. Þar sagði hann meðal ann­ars: Það að lengja í þessu bréfi og það á hærri vöxtum er hins vegar ekk­ert aug­ljós­lega góður kostur. Þegar ein­hver skuldar eitt­hvað sem hann getur ekki borgað leysir það ekki öll mál að hækka vext­ina og láta þá tikka í lengri tíma.

Það sem snýr hins vegar að stjórn­völdum í þessu máli er hvort for­svar­an­legt sé að veita und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­unum bara fyrir þessa aðila á meðan aðrir verða áfram lok­aðir hér innan hafta. Það getur ekki verið for­svar­an­legt að veita und­an­þágu fyrir einn eða tvo til­tekna aðila til þess að sleppa út með gjald­eyri, jafn­vel nið­ur­greiddan gjald­eyri, gjald­eyri sem yrði þá nið­ur­greiddur af þeim sem eftir sætu í höftum og þar með talið íslenskum almenn­ingi, hugs­an­lega með var­an­legri skerð­ingu á raun­gengi krón­unnar sem þýðir ein­fald­lega lak­ari lífs­kjör í land­inu til fram­tíðar. Slík nið­ur­staða væri alltaf óásætt­an­leg og þar af leið­andi gætu stjórn­völd ekki heim­ilað und­an­þágu frá höft­unum sem leiddi til slíks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Höft

SkýringHöft

Íslands­banki stað­festir vilja til að skrá bank­ann á markað erlendis

Eigendur Íslands­banka stefna að því að tví­skrá bank­ann á markað. Hluta­bréf bank­ans yrðu þá skráð á markað á Íslandi ann­ars vegar og annað hvort á mark­aði í Skand­in­avíu eða London hins vegar. Áður en af því verður þarf þó að liggja fyrir með hvaða hætti hægt verður að greiða arð til nýrra eig­enda, en fjár­magns­höftin hindra slíkar í dag. Þetta...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár