Ákvörðun Hönnu Birnu eykur kostnað ríkissjóðs vegna verjenda

Eitt af síð­ustu verkum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, áður en hún baðst lausnar frá mál­efnum dóms- og ákæru­valds, var að fella úr gildi reglu­gerð þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Rögnu Árna­dóttur, frá árinu 2009, þar sem þókn­anir verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna voru tak­mark­aðar við tíu þús­und krónur að hámarki á klukku­stund.

Reglu­gerð Hönnu Birnu er dag­sett 15. ágúst, eða sama dag og opin­berað var að Rík­is­sak­sókn­ari hygð­ist ákæra aðstoð­ar­mann hennar, Gísla Frey Val­dórs­son, fyrir meinta aðild hans að leka­mál­inu svo­kall­aða. Þennan sama dag baðst Hanna Birna svo lausnar frá mál­efnum dóms- og ákæru­valds.

Reglu­gerðin frá 2009 var við­bragð stjórn­valda til að bregð­ast við auknum fyr­ir­séðum kostn­aði rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna í kjöl­far banka­hruns­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu var kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna röskar 294 millj­ónir króna árið 2009, en reglu­gerðin sem tak­mark­aði þókn­anir til fyrr­greindra tók ekki gildi fyrr en 14. ágúst það ár. Árið 2010 nam kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa ríf­lega 254 millj­ónum króna, og lækk­aði lít­il­lega á milli ára vafa­lítið vegna fyrr­greindrar reglu­gerðar frá árinu áður.

Árið 2011 hækk­aði kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna upp í ríf­lega 262 millj­ónir, og árið 2012 nam kostn­að­ur­inn hátt í 308 millj­ónum króna. Á síð­asta ári hækk­aði svo kostn­aður rík­is­sjóðs enn frekar vegna þókn­anna til handa verj­endum og rétt­ar­gæslu­mönnum, og end­aði í tæp­lega 425 millj­ónum króna í lok árs 2013.

Samkvæmt laus­legri könnun Kjarnans rukka lög­menn og lög­fræði­stofur að jafn­aði um 20 þús­und krónur fyrir hverja klukku­stund, eða tvö­falt hærra en kveðið er á um í reglu­gerð­inni frá árinu 2009 sem inn­an­rík­is­ráð­herra felldi úr gildi í ágúst. Því má áætla með nokk­urri vissu að við­búið sé að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna verj­enda og rétt­ar­gæslu­manna á þessu ári, og þau næstu á eftir, muni hækka, í ljósi þess að lög­menn geta nú krafið ríkið um máls­kostnað út frá tíma­gjaldi sínu.

Þess ber þó að geta að það verður áfram í valdi hvers dóm­ara að ákvarða máls­kostnað verj­enda við dóms­upp­kvaðn­ingu, með hlið­sjón af fram­lögðum reikn­ingum. Til­hneig­ing þeirra hefur verið að ákvarða lægri máls­kostnað en reikn­ingar verj­enda segja til um. Þá gerir ríkið sömu­leiðis kröfu á þann dæmda að hann end­ur­greiði rík­is­sjóði útlagðan kostnað vegna verj­anda hans, og þá veltur end­ur­greiðslan á því hvort við­kom­andi sé borg­un­ar­maður fyrir reikn­ingnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár