Amazon opnar fyrstu verslun sína í raunheimum

Amazon, stærsta inter­net­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna og eitt það stærsta í heim­inum, ætlar að opna verslun í New York fyrir kom­andi jól. Það þykir, væg­ast sagt, sæta tíð­indum enda snérist upp­runa­legt við­skipta­módel Amazon, bóka­búð á net­inu, um að neyt­endur ættu að geta pantað sér allar bækur sem þeim þyrstir í heim að dyrum fyrir lægra verð en smá­sal­inn rukkar þá. Versl­unin, sem verður stað­sett á 34. stræti, milli flagg­skips­versl­unar Macy´s í borg­inni og Empire State-bygg­ing­ar­innar, verður fyrsta versl­unin í raun­heimum sem netris­inn opnar. Frá þessu er greint í The Wall Street Journal.

Amazon hefur auð­vitað vaxið gríð­ar­lega síðan að vef­síða fyr­ir­tæk­is­ins, sem stofnað var af Jeff Bezos árið 1994, var sett í loftið fyrir 19 árum. Fyr­ir­tækið fram­leiðir nú meðal ann­ars ýmsar vörur á borð við snjall­síma og lestr­ar­tölvur undir vöru­línu­heit­unum Fire og Kindle og rekur eitt háþró­að­asta vöru­húsa- og heim­send­inga­kerfi heims­ins. Það er líka orðið ansi langt síðan að Amazon seldi bara bækur. Velta fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2013 nam 75,5 millj­örðum dala, eða rúm­lega 9.100 millj­arðar króna. Það er rúm­lega fimm sinnum þjóð­ar­fram­leiðsla Íslands í fyrra.

For­svars­menn Amazon segja að opnun versl­un­ar­innar sé ein­ungis til­raun og að ekki sé um stefnu­breyt­ingu að ræða. Versl­unin muni þjóna hlut­verki lít­ils vöru­húss, við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins muni geta sótt pant­anir þangað og skilað vörum líkt og þeir geta nú þegar í vöru­húsum Amazon sem stað­sett eru víðs­vegar um heim­inn. Auk þess verði versl­unin notuð til að sýna Kindle og Fire vöru­línur fyr­ir­tæk­is­ins. Erlendir frétta­miðlar virð­ast hins vegar margir vera á þeirri skoðun að opn­unin sé ein­ungis fyrsta skrefið af mörgum í inn­reið Amazon í raun­heima­verslun til að keppa við sam­keppn­is­að­ila á borð við Apple, sem rekur versl­anir með vörur sínar út um allan heim. Vöru­þróun fyr­ir­tæk­is­ins und­an­farin miss­eri (tæki til að auð­kenna varn­ing, korta­les­ari til að kaupa varn­ingin osfr.) und­ir­striki þá kenn­ingu.

Versl­unin á að opna fyrir jóla­ver­tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár