Gísli Freyr krefst frávísunar og gagnrýnir ákæru harðlega

„Það er greini­legt að ákæru­valdið hefur ekki hug­mynd um það hvernig upp­lýs­ing­arnar sem fram komu í sam­an­tekt­inni röt­uðu í hendur fjöl­miðla þrátt fyrir margra mán­aða ítar­lega rann­sókn. Ákærði getur af þessum sökum með engu móti áttað sig á því hver sú hátt­semi er sem honum er gefin að sök.“ Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Gísla Freys Val­dórs­son, sem ákærður er í leka­mál­inu svo­kall­aða. Gísli Freyr, sem er í tíma­bundnu leyfi frá störfum sem aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, lýsti yfir sak­leysi sínu við þing­fest­ingu máls­ins í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Hann krafð­ist frá­vís­unar máls­ins, og til vara að hann yrði sýkn­aður af öllum sak­ar­giftum.

Gísli Freyr er ákærður fyrir að brjóta gegn þagn­ar­skyldu í starfi með því að láta óvið­kom­andi í té upp­lýs­ingar sem koma fram í minn­is­blaði um Tony Omos.

Í grein­ar­gerð sinni gagn­rýnir Gísli Freyr alla máls­með­ferð­ina harð­lega.

„Í ákæru er ekki til­greint hverjum, einum eða fleiri, ákærði á að hafa veitt upp­lýs­ingar úr sam­an­tekt­inni enda ósannað að svo hafi hann gert, sbr. rök­stuðn­ing fyrir sýknu­kröfu. Er látið nægja að lýsa því að upp­lýs­ing­arnar hafi verið látnar „óvið­kom­andi“ í té. Það koma því sam­kvæmt ákæru allir til greina sem við­tak­endur svo fremi sem þeir telj­ast mál­inu „óvið­kom­andi“. Ákærði getur því ekki not­ast við hefð­bundin úrræði til þess að verja sig eins og fyrr er nefnt. Að því er varðar frá­vís­un­ar­þátt máls­ins byggir ákærði á því að til þess að nokkur geti talist vera „óvið­kom­andi“ verði að liggja fyrir um hvern ræðir. Með öðrum orðum verður að liggja fyrir hver eða hverjir voru ætl­aðir við­tak­endur upp­lýs­ing­anna.

Til að bíta höf­uðið af skömminni hefur ákæran heldur ekki að geyma lýs­ingu á ætl­aðri verkn­að­ar­að­ferð. Í stað þess að útlista hvernig ákærði á að hafa veitt upp­lýs­ingar úr sam­an­tekt­inni, t.d. með afhend­ingu útprent­aðs eða hand­rit­aðs ein­taks, upp­lestri, fjar­skiptum, mors-send­ingum eða reyk­merkjum er í ákæru not­ast við hina mjög svo almennu athöfn „að láta e-m e-ð í té“,“ segir í grein­ar­gerð Gísla Freys.

Lesa má grein­ar­gerð Gísla Freys í heild sinni á með­fylgj­andi tengli. Grein­ar­gerd - Gisli Freyr

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár