Gísli Freyr krafinn um sjö milljónir króna í miskabætur

Mál Rík­is­sak­sókn­ara á hendur Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, um meinta aðild hans að leka­mál­inu svo­kall­aða, var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun.

Við þing­fest­ingu máls­ins lagði Rík­is­sak­sókn­ari fram fram­halds­á­kæru á hendur Gísla Frey þar sem tvær konur, sem minnst er á í umræddri sam­an­tekt inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos, krefj­ast sam­tals sjö millj­óna króna í skaða­bætur frá Gísla Frey.

Önnur konan, Fjóla Kristín Ólafar­dóttir, sem sögð var í sam­bandi við Tony Omos í sam­an­tekt inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, krefst 2,5 millj­óna króna, og Evelyn Glory Joseph, sem sögð var mansals­fórn­ar­lamb og vænt­an­leg barns­móðir Omos í sam­an­tekt­inni, krefst 4,5 millj­óna króna. Þær telja sig hafa orðið fyrir mis­gjörð og miska þegar per­sónu­legum upp­lýs­ingum um þær var lekið til fjöl­miðla.

Við þing­fest­ingu máls­ins í morgun lýsti Gísli Freyr sig sak­lausan af saka­giftum í leka­mál­inu, en hann er ákærður fyrir brot gegn þagn­ar­skyldu í starfi sínu sem aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra með því að láta fjöl­miðlum í té umrædda sam­an­tekt. Gísli Freyr lagði jafn­framt fram kröfu um frá­vísun máls­ins, við þing­fest­ingu máls­ins í dag, og óskaði eftir að hún yrði tekin fyrir sem fyrst. Ákveðið var að taka frá­vís­un­ar­kröf­una fyrir þriðju­dag­inn 30. sept­em­ber. Í grein­ar­gerð Gísla var ekki tekin afstaða til fram­halds­á­kæru ákæru­valds­ins, þar sem hann vissi ekki af til­vist hennar fyrr en í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár