Lekamálið: Ákæran á hendur Gísla Frey þingfest í dag

Mál Rík­is­sak­sókn­ara á hendur Gísla Frey Val­dórs­syni, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, fyrir meinta aðild hans að leka­mál­inu svo­kall­aða, verður þing­fest fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Gísli Freyr er ákærður fyrir brot gegn þagn­ar­skyldu í starfi, með því að hafa látið óvið­kom­andi í té minn­is­blað er varð­aði hæl­is­leit­and­ann Tony Omos.

Í ákæru máls­ins segir að minn­is­blaðið hafi verið unnið af starfs­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til upp­lýs­ingar fyrir inn­an­rík­is­ráð­herra, í til­efni af boð­uðum mót­mælum við inn­an­rík­is­ráðu­neytið 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, vegna brott­vís­unar Tony Omos.

Í minn­is­blað­inu var að finna við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um einka­mál­efni þriggja ein­stak­linga, en þar var því meðal ann­ars haldið fram að Tony Omos hefði stöðu grun­aðs manns í tveimur umfangs­miklum saka­málum, að í hæl­is­máli Evelyn Glory Joseph sem ætti von á barni, hugs­an­lega með Tony Omos, sé því borið við að hún sé mansals­fórn­ar­lamb og að Tony Omos sé í sam­bandi við íslenska stúlku sem var nafn­greind í minn­is­blað­inu. Þá segir í ákærunni að upp­lýs­ing­arnar hafi verið til þess fallnar að hafa áhrif á umfjöllun um mál­efni Tony Omos sem hæl­is­leit­enda.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra leysti Gísla Frey frá störfum 15. ágúst síð­ast­lið­inn þegar ljóst varð að hann yrði ákærður vega leka­máls­ins, en hann hefur alfarið neitað sök í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár