Árið 2014: Fyrri hluti tónlistarársins

Þegar haustið er gengið í garð er fátt betra en að tylla sér í sófann, breiða yfir sig teppi og hlusta á góða tón­list. Þá er ekki verra að kynn­ast nýjum tón­list­ar­mönnum eða týndum ger­semum. Því má hér finna hitt og þetta úr ýmsum stefnum sem glæddi fyrri helm­ing árs­ins 2014 lífi og góðum tónum. Hellið upp á te og njótið!

Against Me! - Transgender Dysphoria Blues


http://www.youtube.com/watch?v=HEE7iw5WYJI

Against Me! hafa verið milli tann­anna á fólki síð­ast­liðin ár eftir að söngv­ari sveit­ar­innar, Tom Gabel, ákvað að hefja loks­ins opin­ber­lega sitt rétta líf sem kona, Laura Jane Grace. Þar varð til helsti inn­blástur að Trans­gender Dysphoria Blues – og Grace varð um leið trans­gender fólks víðs vegar inn­blástur. Platan er því ekki ein­göngu flott plata ein og sér, heldur byggir hún á raun­veru­legri og mik­il­vægri leit að sjálf­inu og grípur hlust­endur með sér á áður ókann­aðan hátt.

Damon Albarn - Everyday Robots


http://youtu.be/rjbiUj-FD-o

Damon Albarn fylgdi eftir óper­unni Dr Dee (2012) með örlítið hefð­bundn­ari plötu – sem kannar þó nýjar hliðar á tón­list­ar­mann­inum. Laga­smíð­arnar sem og hljóð­vinnsla eru meðal hans bestu til þessa og fengu tón­list­ar­spek­úlanta og aðdá­endur víðs vegar til að staldra við og hlusta.

Fatima Al Qadiri – Asiatisch


http://youtu.be/rOjxmR6mXBY

Asiatisch er frumraun Fatima Al Qadiri og kemur út hjá hinni virtu plötu­út­gáfu Hyperdub sem er leið­andi í útgáfu fram­úr­stefnu­legrar raf­tón­listar í dag. Á Asiatisch leiðir Al Qadiri hlust­endur í gegnum ímynd­aða Kína og er útkoman fram­andi og ferskir raf­tónar. Svo ekki sé minnst á magn­aða ábreiðu af “Nothing Compares 2U”.

Avey Tare’s Slasher Flicks – Enter The Slasher House


http://youtu.be/D6cngTn2_NY

Animal Collective gáfu ekki út plötu í ár, það verður því ein­hver að taka að sér að senda frá sér sýru­húð­aða poppsmelli. Það þarf þó ekki að leita langt yfir skammt – Avey Tare, for­sprakki sveit­ar­innar, tók sig hrein­lega til og stofn­aði nýja hljóm­sveit sem sinnir þessu verk­efni hreint ágæt­lega með plöt­unni Enter The Slasher House.

Baths – Ocean Death


http://youtu.be/2yldjzy238E

Baths, hlið­ar­sjálf Will Wiesenfeld, fylgir eftir frá­bærri plötu síð­asta árs með jafn­vel enn betri stutt­skífu. Hljóm­ur­inn er þyngri, dekkri – en á sama tíma leik­andi. Partýtón­list fyrir lengra komna.

Beck – Morning Phase


http://youtu.be/WIWbgR4vYiw

Morning Phase er fyrsta plata Beck í hart­nær sex ár. Hún kynnir aftur til leiks mýkri hliðar tón­list­ar­manns­ins eftir nokkur ár af breyttum áherslum. Beck hefur sjálfur sagt að hún sé eins­konar fylgi­plata hinnar sívin­sælu Sea Change (2002) og getur það vel passað, hún á að minnsta kosti margt meira sam­eig­in­legt með þeirri plötu en þeim sem á eftir komu.

Majid Bekkas – Al Qantara


http://youtu.be/8r-M4HnMBa8

Hinn Marokkóski Majid Bekkas gaf út hrika­lega fal­lega plötu á árinu sem synd er að nái ekki eyrum allra. Heims­tón­list bland­ast djassi með töfr­andi inn­gripi skringi­legra hljóð­færa svo úr verður tón­list í hæsta gæða­flokki.

Mac Demarco – Salad Days


http://youtu.be/kz9jhG963no

Kæru­leys­is­legt gít­ar­gutl Mac Demarco og grall­ara­legir text­arnir ættu að vera flestum kunn­ugir á þessum tíma­punkti, en ef ekki þá er Salad Days full­komin inn­vígsla inn í hug­ar­heim Kana­da­bú­ans. Besta plata hans til þessa.

Freddie Gibbs & Madlib - Piñata


http://youtu.be/kGaRbhat-FA

Freddie Gibbs og Madlib sendu frá sér saman plöt­una Piñata sem er einkar vel heppnað sam­starf. Fjöl­margir aðrir lista­menn leggja einnig hönd á plóg, þar á meðal Raekwon, Earl Sweatshirt og Danny Brown. Eftir útgáfu plöt­unnar tók Madlib sig til – en hann gegndi jan­framt hlut­verki pródúsers – og gaf út ann­ars­konar útgáfu plöt­unnar, Piñata Beats, þar sem söngur og rapp fá að missa sín og er hún hvergi síðri.

Fucked Up! – Glass Boys


http://youtu.be/94V-XCSQNGQ

Fucked Up! tengja saman pönk og popp á und­ar­lega áreynslu­lausan hátt og byggja þannig brú milli tveggja heima. Glass Boys fylgir eftir David Comes To Life (2011) og þó hún nái kannski ekki alveg sömu hæðum er hún vel áheyrn­ar­innar virði.

Lykke Li – I Never Learn


http://youtu.be/Hh-0y8Qe0Sw

Sænska popp­drottn­ingin sendir hér frá sér plötu þar sem hver hitt­ar­inn á fætur öðrum hlýtur að fá flesta til að hækka í græj­unum og syngja með. Platan er þó ekki bara gleði og glaumur; hún er átak­an­leg útrás tón­list­ar­kon­unnar til að kom­ast yfir ást­ar­sorg og hljóm­ur­inn er sam­kvæmt því; trega­fullur og dreym­andi.

Oneohtrix Point Never - Commissions


http://youtu.be/_vhnMkcK5yo

Stutt­skífan Commissions minnir mann á af hverju Dan Lopatin / Oneot­hrix Point Never er í guða­tölu margra raf­tón­list­arunn­enda. Orgel bland­ast raf­töktum, ábreiðu­lög öðl­ast nýjan til­gang í óhugna­legum bún­ing og fram­úr­stefnu­legar en um leið melódískar laga­smíð­arnar eru ein­stakar.

Owen Pallett – In Conflict


http://youtu.be/-BJDbL2KBuM

Eftir hina frá­bæru plötu Heartland (2010) sendir Owen Pallett (áður Final Fantasy) nú frá sér ekki slak­ari grip - In Conflict. Pallett er ein­stakur laga­smiður á heims­mæli­kvarða og það sést greini­lega á þess­ari plötu. Sem fyrr er fiðlan í fyr­ir­rúmi og nú hefur Brian Eno bæst í hóp­inn – blanda sem virkar vel.

Sun Kil Moon – Benji


http://youtu.be/CMuo7GFXa0k

Benji hefur trónað á helstu topp­listum árs­ins hingað til og ekki að furða. Á plöt­unni syngur Mark Kozelek, fyrrum for­sprakki Red House Painters, um atburði úr eigin lífi, sem flestir hverjir eru helst til dap­ur­legir. Platan er þó aldrei yfir­þyrm­andi þung – þvert á móti er húmor­inn aldrei langt undan.

Swans – To Be Kind


http://youtu.be/1jSdTBGhDSg

Það er magnað að skoða sögu Swans sem hljóm­sveitar og nýj­ustu afurðir sveit­ar­innar sem eru hver annarri betri, ár eftir ár. Feik­inógur fersk­leiki ein­kennir þessa goð­sagna­kenndu sveit sem er búin að vera að í meira en þrjá ára­tugi og hefur enn margt til mál­anna að leggja.

Timber Timbre – Hot Dreams


http://youtu.be/En1llevuLQ4

Það er eitt­hvað óvenju heill­andi við að skyggn­ast inn í hug­ar­heim Timber Timbre á Hot Dreams. Lögin tíu leyna heldur betur á sér og platan býður upp á hlað­borð af stefnum og straumum sem saman mynda hljóð­ræna heild og verða bara betri og betri við hverja hlustun.

Ana Tijoux - Vengo


http://youtu.be/BN4k3mnJteo

Ana Tijoux semur fjöl­breytta tón­list sem tvinnar saman hinum ýmsu stefnum og áhrifum eins og ekk­ert sé. Auk­in­heldur eru lögin broddum hlaðin og há sam­fé­lags­lega ádeilu, ekk­ert er henni heil­agt eða óvið­kom­andi.

Sharon Van Etten - Are We There


http://youtu.be/fDW-W2J84Hc

“People say I’m a one hit wonder…” syngur Sharon Van Etten á loka­lagi Are We There. Hún er þekkt fyrir hrein­skilna og brot­hætta texta og laga­smíðar sem byggja oftar en ekki á eigin lífi, en óhætt er að búast við að eng­inn muni full­yrða hið fyrr­nefnda eftir að hafa heyrt þessa frá­bæru plötu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árið 2014

SkýringÁrið 2014

Árið 2014: Mark­að­irnir í máli og myndum

Þegar litið er á þróun mark­aða með fast­eignir, hluta­bréf og gjald­eyri á árinu 2014 má sjá merki um auk­inn stöð­ug­leika sam­an­borið við árin á undan. Sveiflur eru mýkri og meira jafn­vægi ríkir en gerði á árunum 2009 til 2013, hvað þá heldur í sam­an­burði við árin 2005-2008. Verð­bólgu hefur verið haldið í skefjum, áhrif meiri­háttar stjórn­valds­að­gerða hafa ekki komið fram...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Vin­sæl­ast í Kjarn­anum á árinu

Alm­an­aks­árið hefur verið við­burða­ríkt í Kjaranum. Kjarninn færði sig alfarið á ver­ald­ar­vef­inn í lok sum­ars og hefur nú eitt heim­il­is­fang í stað nokk­urra. Fjöldi heim­sókna á kjarn­inn.is síðan þá hefur verið framar vonum og því áhuga­vert að kanna hvaða færslur hafa verið vin­sælastar meðal les­enda á þessum tíma.10. Gáma­kyn­slóðin Hrafn Jónsson, einn pistla­höf­unda Kjarnans, átti eina af vin­sæl­ustu færslum árs­ins...
PistillÁrið 2014

Auðunn Atlason

Árið 2014: Stríð og friður í Evrópu

Auðunn Atlason er fasta­full­trúi Íslands hjá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, og hefur á árinu 2014 haft ein­stak inn­sýn í utan­rík­is­póli­tíska heims­við­burði í Austur-Evrópu. Hann skrifa hér um spenn­una í Úkraínu og nágrenni og hvernig hún birt­ist okkur á árinu. Sumarið 2012 var Evr­ópu­mótið í fót­bolta haldið í Póllandi og Úkraínu. Þá horfðum við Íslend­ingar – og hálf heims­byggðin – á...
PistillÁrið 2014

Hafsteinn Hauksson hagfræðingur

Árið 2014: Enn eitt hafta­árið á enda

Haf­steinn Gunnar Hauksson, hag­fræð­ingur og meist­ara­nemi við London School of Economics, fer yfir vendi­punkta í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á árinu sem senn er á enda. Þetta var tíð­inda­mikið ár, og allt útlit fyrir að það næsta verði það líka. Gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans og gengi krón­unnar Vorið 2013 tók Seðla­banki Íslands upp stefnu sem bank­inn kallar „stýrt flot­gengi“, en hún felur í sér...
FréttirÁrið 2014

Árið 2014: Bárð­ar­bunga bærir á sér

Ég er í dokt­ors­námi við Cambridgeháskóla í Bret­landi og lenti í ótrú­legri atburða­rás þegar Bárð­ar­bunga fór að bæra á sér. Ég var nýbyrjuð í nám­inu þannig að Bárð­ar­bunga hefur yfir­tekið verk­efnið mitt. Ótrúleg heppni að lenda í miðri hring­iðunni. Cambridge hefur verið með skjálfta­mæla­net á Öskju­svæð­inu síðan 2006 sem hefur hægt og rólega farið stækk­andi. Þegar aukin skjálfta­virkni í Bárð­ar­bungu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár