Since I‘ve been Loving You í mestu uppáhaldi

Val­gerður Páls­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bjartjar fram­tíðar, svarar sjö spurn­ingum.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana?

Nýja starfið mitt og til­hugs­unin um frelsi í lok mán­aðar þegar ég skila af mér meist­ara­rit­gerð.

Hvert er þitt helsta áhuga­mál?

Eins klisju­kennt og það hljómar þá eru það ferða­lög og að búa á nýjum stöðum. Ég elska að upp­lifa nýja staði og menn­ingu.

Hvaða bók lastu síð­ast?

Ég les yfir­leitt sögu­legar skáld­sögur og kláraði nýlega bók­ina „And the mountains echoed“ eftir Khaleid Hosseini. Sagan ger­ist í Afganistan, Frakk­landi og Banda­ríkj­unum en höf­und­ur­inn ólst sjálfur upp á þessum þremur stöðum. Áhuga­verð­ast við sög­una fannst mér að fá inn­sýn inn í eft­ir­stríðs­upp­bygg­ing­una í Afganistan og síðan hef ég alltaf verið hrifin af rit­stíl Hosseini, hann nær að lýsa skelfi­legum hlutum á svo fal­legan hátt.

Hvert er þitt upp­á­halds­lag?

Since I´ve been Loving You með Led Zeppelin hefur verið í upp­á­haldi síð­ustu 10 ár.

Til hvaða ráð­herra berðu mest traust?

Eyglóar Harð­ar­dóttur.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú fara?

Ég myndi fara til upp­á­halds borg­ar­innar, Seattle í Banda­ríkj­unum og heim­sækja skiptinema­fjöl­skyld­una mína og vini. Þar væri ég til í að rölta um Uni­versity of Washington háskóla­svæðið, fá mér Dicks borg­ara, heim­sækja Gas Works Park og taka svo ferj­una yfir til nær­liggj­andi smá­bæja.

Hvað fer mest í taug­arnar á þér?

Hroki, til­lits­leysi, kynja­mis­rétti og for­dómar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár