Flokkur

Sjö spurningar

Viðtal

Börnin, One með U2 og slæmir línu­verðir

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­stöðu­maður mennta- og nýsköp­un­ar­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, svar­aði sjö spurn­ingum fyrir Kjarnann. Hún lætur línu­verði sem ekki eru með á nót­unum fara í taug­arnar á sér. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Börnin mín og það hversu skemmti­lega ólík þau eru og krefj­andi á sinn dásam­lega hátt. Og svo auð­vitað hund­ur­inn okkar, hún Freyja Sumarsól Hvert er helsta...
Viðtal

Bíóið helsta áhuga­málið og Berlín besta borgin

Árni Svanur Dan­í­els­son vef­prestur svarar sjö spurn­ingum Kjarnans. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Að hjóla um fal­legu borg­ina okkar, ein­sam­all eða með frúnni og börn­unum. Hvert er þitt helsta áhuga­mál? Bíóið er númer eitt um þessar myndir því nú snýr RIFF aftur. Ég sit í dóm­nefnd­inni sem veitir kvik­mynda­verð­laun kirkj­unnar. Framundan er veisla fyrir augun, eyrun og koll­inn. Hvaða...
Viðtal

Since I‘ve been Loving You í mestu upp­á­haldi

Val­gerður Páls­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bjartjar fram­tíðar, svarar sjö spurn­ingum. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Nýja starfið mitt og til­hugs­unin um frelsi í lok mán­aðar þegar ég skila af mér meist­ara­rit­gerð. Hvert er þitt helsta áhuga­mál? Eins klisju­kennt og það hljómar þá eru það ferða­lög og að búa á nýjum stöðum. Ég elska að upp­lifa nýja staði og menn­ingu. Hvaða bók...
Viðtal

Sjö spurn­ingar: Synir, sólin og kaffi­vélin gleðja mest

Sigrún Ósk Krist­jáns­dóttir dag­skrár­gerð­ar­kona svarar sjö spurn­ingum.Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Synir mínir, sól­ar­dag­arnir sem ágúst bauð upp á og nýja kaffi­vélin mín. Svo er ég svo ein­föld sál að ég gleðst alltaf yfir því þegar afmæl­is­dag­ur­inn minn nálg­ast. Nið­ur­taln­ing er hafin. Hvert er helsta áhuga­mál þitt? Inter­netið. Hvaða bók lastu síð­ast? Við Jóhanna. Var að klára hana í...
Viðtal

Með áráttu­hegðun í að skoða fast­eigna­vefi

Sigríður Björg Tóm­as­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Kópa­vogs­bæjar, svar­aði sjö spurn­ingum í nýjasta Kjarn­anum. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Það gleður mig fárán­lega mikið að mér hafi tek­ist að ljúka Snæ­fells­jök­uls­hlaup­inu síð­ustu helgi með bros á vör. Sá það ekki fyrir mér þegar ég byrj­aði á nám­skeiði í utan­vega­hlaupi í vor að ég myndi geta hlaupið 22 kíló­metra í júní­lok. Hvert er...
Viðtal

Golf og fót­bolti gleðja en Sepp Blatter ekki

Magnús Geir Eyj­ólfs­son, rit­stjóri Eyjunnar, Þróttari og Everton­maður, svarar sjö spurn­ingum í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Meira og minna allt. HM er byrjað, golf­vell­irnir eru orðnir grænir, sum­ar­fríið framundan og svo er frúin að útskrif­ast sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Lífið gæti ekki verið betra. Hvert er þitt helsta áhuga­mál? Þessa stund­ina kemst fátt annað að en fót­bolti...
Viðtal

Dimitri með HAM er senni­lega upp­á­halds­lagið

Gunnar Val­þórs­son, frétta­maður og gít­ar­leik­ari í Striga­skóm nr. 42, svar­aði sjö spurn­ingum í síð­asta Kjarna. Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Góða veðrið og börnin mín. Hvert er helsta áhuga­mál þitt? Ég spila á gítar í Striga­skóm nr. 42. Það er aðal­á­huga­málið og ég er orð­inn veru­lega spenntur fyrir menn­ing­ar­við­burð­inum Eistna­flugi í Nes­kaup­stað í sumar. Hvaða bók lastu síð­ast? Palo...

Mest lesið undanfarið ár