Íhugar framtíð sína í stjórnmálum

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far þess að bréf umboðs­manns var birt fyrir hádegi í dag. Hún seg­ist íhuga stöðu sína í stjórn­málum, hvort það sé sá vett­vangur sem hún vilji starfa til fram­tíðar. Þar ítrekar hún jafn­framt það sem hún hefur áður sagt; að hún hafi engan beitt óeðli­legum þrýst­ingi við rann­sókn máls­ins.

Ráð­herr­ann seg­ist ætla að nýta það svig­rúm sem henni hefur verið veitt í stjórn­ar­ráð­inu, með flutn­ingi dóms­mála og ákæru­valds frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, til að skýra stöðu sína í mál­inu og hvernig það horfir við henni póli­tískt. „[…] en einnig til að taka per­sónu­lega ákvörð­unum um það með mínum nán­ustu hvort stjórn­málin eru minn fram­tíð­ar­staður eða hvort bar­áttan fyrir betra sam­fé­lagi verði betur háð utan kerf­is­ins en innan þess.“


Í yfir­lýs­ing­unni gagn­rýnir Hanna Birna athug­anir umboðs­manns á sam­skiptum sínum við Stefán Eiríks­son. Þar segir meðal ann­ars: „Fram­setn­ing og vinnu­brögð umboðs­manns í þessu máli eru þannig að mínu mati engu betri en margra þeirra blaða­manna sem hafa um málið fjallað og virð­ast hafa það eitt að mark­miði að sanna sekt í máli sem nú er fyrir dóm­stólum eða gera eðli­legar áhyggjur ráð­herra og ráðu­neytis af öðrum mik­il­vægum trún­að­ar­gögnum tor­tryggi­leg.“

Yfir­lýs­ingu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur má

lesa hér á vef RÚV

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár