Hanna Birna hótaði lögreglu og ríkissaksóknara rannsókn

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra kom ítrekað á fram­færi gagn­rýni sinni á rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu svo­kall­aða við Stefán Eiríks­son, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á meðan að rann­sókn máls­ins stóð yfir. Á meðal þess sem Hanna Birna sagði við Stefán var að „þegar þessu mái yrði lokið þá væri það alveg ljóst í hennar huga að það þyrfti að rann­saka rann­sókn lög­reglu og rík­is­sak­sókn­ara.“ Þetta kemur fram í 23 blað­síðna bréfi umboðs­manns Alþingis til Hönnu Birni sem sent var í gær. Í bréf­inu er sam­tal Umboðs­manns við Stefán vegna afskipta Hönnu Birnu af störfum lög­reglu í leka­mál­inu rakið.

Bréf Umboðs­manns Alþingis má lesa í heild sinni hér.

Eruð þið ekki að ganga of langt í þessu öllu saman?


Í sam­tali sínu við umboðs­mann rekur Stefán að hann telji sér skylt að svara spurn­ingum hans um sam­skipti sín við Hönnu Birnu þrátt fyrir að hann telji að trún­aður sé á sam­skipt­unum. Þetta geri hann með hlið­sjón af lögum um umboðs­mann Alþingis.

Hér að neðan eru ýmis brot úr svörum Stefáns líkt og þau birt­ast í bréfi umboðs­manns.

„Í máli L [Stéfán Eiríks­son] kom fram að í sam­tölum hans við yður [Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur] og aðstoð­ar­mann­inn, bæði í síma og síðan á fundi eða fundum í ráðu­neyt­inu í jánúar sl., hefði komið fram að þér væruð mjög ósáttar og gerðar hefðu verið athuga­semdir vegna þess að lög­reglan hefði ekki upp­lýst yður um að kæra væri komi fram og gerðar hefðu verið athuga­semdir við þá fram­göngu yfir­lög­reglu­þjóns­ins að upp­lýsa um þetta í fjöl­miðlum."

Eftir að rann­sókn er haf­inn halda athuga­semdir ráð­herra áfram. „Og fyrstu athuga­semd­irnar sem ég fæ frá ráð­herra eru lík­lega í sím­tölum þar sem hún er að undra sig yfir umfangi rann­sókn­ar­innar og hvað við erum að ganga langt, að við erum að taka þarna tölvu af aðstoð­ar­manni hennar, fá upp­lýs­ingar um síma­gögn og fjöl­margt annað. Hún er að fara yfir það að þetta séu mjög við­kvæm gögn.“ L segir að fyrst og fremst hafið þér sett fram spurn­ingar til hans og þá af hverju væri verið að gera þetta og að þetta setti yður í alls kyns vanda gagn­vart rík­is­stjórn­inni. L heldur áfram: „Í einu orðin sagði hún: Við auð­vitað látum ykkur fá allt. Þið hafið aðgang aðþessu öllu saman en eruð þið ekki að ganga of langt í þessu öllu saman?“

Upplifði það að hún hefði farið yfir strikið


„Eins og fram kemur í bréfi yðar [Hönnu Birnu] frá 15. ágúst sl. áttuð þér fund með L [Stefáni] 18. mars sl. L seg­ist ekki muna hvert til­efni þess fundat hafi verið eða hvað hafi nákvæm­lega verið rætt þar, en hann tók síðan fram að „...þetta mál hefur án efa borið þar á góma með ein­hverjum hætti. Síðan koma í kjöl­farið, þetta er í mars, í apríl, maí ... ein­hver fleiri sím­töl. Ég man ekki hvað þau voru mörg, eitt, tvö, þrjú, ýmis þannig að hún hringir í mig beint eða ég fæ sms með orð­unum „Getur þú hringt?“. Og ég hringi þá bara til baka og þá er hún með ýmsar spurn­ingar. Og það kom iðu­lega upp, ann­að­hvort í tengslum við ein­hverjar rann­sókn­ar­að­gerðir lög­reglu – ein­hverju sinni var gerð athuga­semd við það þegar lög­reglu­menn mætti í raðu­neytið án þess að gera boð á undan sér – en svo var þetta mikið í tengslum við það þegar dómur Hæsta­réttar birt­ist í mál­inu, í bæði fyrra og seinna skiptið.

Í einu af þeim sam­tölum þá er hún mjög ósátt við fram­göngu lög­reglu og rann­sóknir og annað í þeim dúr, og ég tek bara við því, en hringir svo í mig aftur og óskar eftir að fá að hitta mig bara svona í þeim til­gangi – það var þá á laug­ar­degi sem hún bað mig um að koma og hitta sig ... til þess að und­ir­strika það að hún sé ekki að reyna að hafa nein áhrif á rann­sókn máls­ins eða annað heldur sé bara að leita eftir svörum við spurn­ingum. Og ég held að hún hafi upp­lifað það þannig að hún hafi farið yfir strikið, já, a.m.k. fag­lega og lík­lega bara svona í per­sónu­legum sam­skiptum, og viljað ein­hern veg­inn slétta það út. Við áttum þarna örugg­lega klukku­tíma­fund í ráðu­neyt­inu þar sem ég var svo eig­in­lega að svara sömu spurn­ingum og gjarnan áður í tengslum við þetta.“

Sagði ríkissaksóknara frá hótunum ráðherra


„Lög­reglu­stjór­inn seg­ist hafa velt því fyrir sér hvað hann ætti að gera vegna allra þess­ara spurn­inga. Sumar hafi verið þess eðlis að hann hafi þurft að afla upp­lýs­inga um rann­sókn­ina. Þess vegna hafi hann haft sam­band við rík­is­sak­sókn­ara og gert gonum grein fyrir því að hann hefði fengið „sím­töl frá ráð­herra þar sem hún var að gera athuga­semdir við ýmsa þætti í rann­sókn­inni og spyrja marg­vís­legra spurn­inga og teldi að rann­sóknin væri of ítar­leg og óskaði eftir upp­lýs­ingum um með­ferð trún­að­ar­gagna og annað í þeim dúr og líka það, og ég kom því á fram­fræri við rík­is­sak­sókn­ara, að hún hefði sagt í þessu sam­tali við mig að þegar þessu mái yrði lokið þá væri það alveg ljóst í hennar huga að það þyrfti að rann­saka rann­sókn lög­reglu og rík­is­sak­sókn­ara.“

Þrýsti á að rannsókninni færi að ljúka


„Lög­reglu­stjór­inn segir að athuga­semdir yðar haf einnig lotið að því að máið gengi allt of hægt fyrir sig og þér hafið viljað að því færi að ljúka „...hún setti okkur ekk­ert í alveg þægi­lega stöðu með sínum athuga­semdum um fram­gang máls­ins til þess raun­veru­lega að ýta á eftir því.“ Nánar aðspurður um þetta atriði sagði Lög­reglu­stjór­inn: „... Það sem setti mig í svolitla klemmu, finnst mér, í tengslum við þetta allt saman er að sá sem er að gera athuga­semd­irnar er yfir­maður lög­reglu­mála í land­inu og full­yrti í öðru hverju orði í öllum þessum sam­tölum að hún væri ekki að reyna að hafa áhrif á rann­sókn máls­ins en gagn­rýndi að þetta gengi allt og hægt fyrir sig. Það setti okkur í svo­lítið erf­iða stöðu að vera að reyna að hraða henni sés­r­stak­lega út af þessum óskum.“

"Dágóð gusa af gagnrýni"


Hanna Birna gerði mjög nákvæmar athuga­semdir, að sögn Stefáns, við ein­staka þætti í rann­sókn máls­ins. Hún gerði meðal ann­ars athuga­semd við að lög­reglan hafi viljað taka við­bót­ar­skýrslu af öðrum astoð­ar­manni hennar. Í svörum Stefáns segir : „Þá fljót­lega fæ ég sím­töl og athuga­semdir frá ráð­herra við það að þetta sé algjör­lega ómögu­legt, hann eigi ekki að þurfa að sæta því að sitja undir þvi heila helgi að vera boð­aður til yfir­heyrslu þannig að við reyndum að flýta þessu eins og hægt var og boð­uðum hann til yfir­heyrslu á laug­ar­degi[...]

Stefán seg­ist hafa litið svo á að hann hafi ekki getað óskað eftir fundum með ráð­herra eða ein­stökum stafs­mönnum ráðu­neytis hennar á meðan að rann­sókn máls­ins stóð yfir út af öðrum aðkallandi málum, eins og fjár­málum eða hús­næð­is­málum. Hann seg­ist margoft hafa lýst því yfir við ráð­herra að staðan hafi verið „algjör­lega ómögu­leg“.

Samkvæmt Stefáni tók Hanna Birna það margoft fram í sam­skiptum sínum við hann að hún væri ekki að skipta sér að rann­sókn­inni „en svo kom svona dágóð gusa af gagn­rýni í fram­hald­inu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár