Vill að Hanna Birna verði yfirheyrð á opnum nefndarfundi

Píratar hafa kraf­ist þess að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra, Stefán Eiríks­son frá­far­andi lög­reglu­stjóri og Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari verði kölluð fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna meintra afskipta ráð­herra af lög­reglu­rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða. Ekki liggur fyrir hvort Pírötum verður að ósk sinni, en það mun ráð­ast eftir næsta fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem enn hefur ekki verið dag­settur.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata og annar vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hún muni krefj­ast þess á næsta fundi nefnd­ar­innar að fundir með þre­menn­ingum verði opnir almenn­ingi og fjöl­miðlum, ef af þeim verður.


Fasta­nefndum Alþingis er í sjálfs­vald sett hvort nefnd­ar­fundir eru opnir almenn­ingi og þá fjöl­miðlum sömu­leiðis. Síðan árið 2008 hafa verið haldnir fjöl­margir opnir nefnd­ar­fundir, eða frá því að störfum Alþingis var breytt það ár.


Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, segir það mjög vel koma til greina að fundir nefnd­ar­innar með þre­menn­ing­unum verði opnir almenn­ingi. En aðrir aðilar séu með málið til umfjöll­unar, emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara og emb­ætti umboðs­manns Alþingis auk lög­regl­unnar og hljóti máls­með­ferð í stjórn­skip­unar- og efitr­lits­nen­fnd Alþingis að taka mið af fram­vind­unni hjá þeim. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um leka­málið.


Meiri­hluti við­kom­andi þing­nefndar þarf að sam­þykkja að þing­fundir séu opnir almenn­ingi. Í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis eru níu nefnd­ar­menn. Auk Ögmundar og Birgittu eiga sæti í nefnd­inni; Brynjar Níelsson, sem jafn­framt er vara­for­maður nefnd­ar­innar, og Pétur H. Blöndal þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Karl Garð­ars­son, Sigrún Magn­ús­dóttir og Willum Þór Þórsson frá Fram­sókn­ar­flokki, og Helgi Hjörvar og Val­gerður Bjarna­dóttir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár