Umboðsmaður vill fá skýrari svör frá innanríkisráðherra

Umboðs­maður Alþingis hefur sent Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra og Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra sitt­hvort bréfið vegna leka­máls­ins. Bréfið til Sig­mundar Davíðs er vegna siða­reglna ráð­herra. Hitt bréfið er sent til inn­an­rík­is­ráð­herra vegna þess að umboðs­manni finnst svör Hönnu Birnu við spurn­ingum sem hann sendi henni í síð­ustu viku ekki full­nægj­andi. Hanna Birna hefur til 15. ágúst að svara bréf­inu. Í því bréfi segir m.a.:

„Ítrekuð er ósk um að umboðs­manni verði afhent þau gögn sem til eru um þessa fundi, gögn sem lögð voru fram eða stuðst við á þessum fundum, þ.m.t. um fund­ar­efni, boðun þeirra og skrán­ingu frá fund­unum. Minnt skal á að sam­kvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 85/1997, um umboðs­mann Alþingis, er stjórn­völdum skylt að afhenda umboðs­manni umbeðin gögn og um með­ferð þeirra og þagn­ar­skyldu fer eftir 8. gr. sömu laga.

[...]


Í svar­inu kemur fram að ráð­herra hafi átt fjóra fundi með lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á tíma­bil­inu frá því rann­sókn sú sem vísað er til í bréf­inu hófst í febr­úar sl. Ítrekuð er ósk umboðs­manns að upp­lýst verði hvenær þessir fundir fóru fram.


[...]

 

Með til­liti til þess sem fram kemur í svar­bréf­inu er óskað eftir að umboðs­manni verði afhent afrit af þeim gagna- og rann­sókn­ar­beiðnum lög­reglu sem beint var til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eftir að áður­nefnd rann­sókn hófst í febr­úar sl. Jafn­framt er óskað eftir að upp­lýst verði hvenær ein­stökum beiðnum var svarað af hálfu ráðu­neyt­is­ins og umbeðin gögn látin í té. Tekið er fram að ekki er óskað eftir afriti af þeim gögnum sem ráðu­neytið kann að hafa afhent lög­regl­unni.


[...]

 

Reglur um skrán­ingu form­legra sam­skipta í Stjórn­ar­ráði Íslands voru settar af for­sæt­is­ráð­herra hinn 20. des­em­ber 2013 á grund­velli 2. mgr. 11. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórn­ar­ráð Íslands. Reglur þessar eru nr. 1200/2013 og voru birtar í B-deild Stjórn­ar­tíð­inda sem kom út 30. des­em­ber 2013 og öðl­uð­ust þegar gildi. Í regl­unum er kveðið á um að skrá skuli í mála­skrá ráðu­neytis form­leg sam­skipti og form­lega fundi milli ráðu­neyta og við aðila utan stjórn­ar­ráðs­ins. Í 3. og 4. tölul. 1. gr. er fjallað um sam­töl og fundi. Í ljósi þess sem fram kemur í svari yðar, fr. inn­an­rík­is­ráð­herra, um það hvað hafi borið á góma í sam­skiptum yðar við lög­reglu­stjór­ann og um upp­lýs­inga­öflun lög­regl­unnar frá ráðu­neyt­inu óskar umboðs­maður eftir að hann verði upp­lýstur um hvað af þessum sam­skiptum, þ.e. fundir og sím­töl, hafi verið skráð í sam­ræmi við reglur nr. 1200/2013 og ef það var ekki gert hverjar hafi verið ástæður þess."



Lestu bæði bréfin í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár