Hanna Birna gagnrýndi seinagang og fundaði með lögreglustjóra

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, inn­an­rík­is­ráð­herra, gagn­rýnir seina­gang við rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða í bréfi til Tryggva Gunn­ars­sonar, Umboðs­manns Alþingis. Bréfið hefur verið birt á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en Tryggvi sendi fyr­ir­spurn á ráð­herra eftir að hafa rætt um málið við Stefán Eiríks­son og Sigríði Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara.

Hanna Birna seg­ist ekki hafa hafta óeðli­leg afskipti af rann­sókn máls­ins en emb­ætti rík­is­sa­sókn­ara hefur það nú til með­ferðar og hefur ákvörðun um hvort ákært verði í mál­inu, sem varðar mein­tan leka á per­sónu­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, ekki verið tekin.

Í bréfi sínu segir Hanna Birna að langur rann­sókn­ar­tími hafa verið baga­legur fyrir sig. „Þegar rann­sókn máls­ins hófst gaf ég út þá yfir­lýs­ingu að ég myndi ekki tjá mig um málið fyrr en henni væri lokið, enda ekki við hæfi að ráð­herra lög­reglu­mála tjáði sig opin­ber­lega um rann­sókn á meðan hún stæði yfir. Meðal ann­ars af þess­ari ástæðu hefur sá langi tími sem rann­sóknin hefur tekið verið baga­legur og t.a.m. tak­markað mögu­leika mína til að svara ítrek­uðum árásum sem ég hef orðið fyrir á opin­berum vett­vangi.“

Hanna Birna seg­ist hafa átt fjóra fundi með Stefáni Eiríks­syni og að leka­málið hafi meðal ann­ars borið á góma á þeim fundum. „Um fyrra atriðið er það að segja að ég hef átt fjóra almenna fundi með lög­reglu­stjóra á tíma­bil­inu frá því fram­an­greind rann­sókn hófst í febr­úar sl., en eng­inn þeirra var boð­aður til að ræða rann­sókn­ina sér­stak­lega. Á þeim mán­uðum sem þessi lög­reglu­rann­sókn hefur staðið yfir hef ég jafn­framt átt sím­töl við lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna ýmissa mála. Ráðherra á eðli máls­ins sam­kvæmt reglu­lega sam­skipti við for­stöðu­menn und­ir­stofn­ana ráðu­neyt­is­ins, oft og tíðum á óform­legum nótum, og er því eins farið með lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ekki er haldin skrá yfir þau sam­skipti og því er mér ekki unnt að leggja fram gögn til að upp­lýsa um til­vik þeirra [...] Í þeim til­vikum sem rann­sókn­ina hefur borið á góma í sam­skiptum mínum við lög­reglu­stjór­ann hefur það snúið að þeirri við­leitni ráðu­neyt­is­ins að greiða fyrir rann­sókn máls­ins. Er hér fyrst og fremst um að ræða atriði sem snerta upp­lýs­inga­öflun lög­regl­unnar frá ráðu­neyt­inu til að hægt sé að ljúka rann­sókn­inni eins fljótt og unnt er. Sér­stak­lega hef ég spurt um öryggi þeirra gagna sem lög­reglan hefur fengið aðgang að hér innan ráðu­neyt­is­ins og varða umrædda rann­sókn ekki með nokkrum hætti. Þá hef ég spurt lög­reglu­stjóra hvenær vænta mætti þess að rann­sókn­inni lyki.“


Sjá má bréf Hönnu Birnu til Umboðs­manns Alþingis hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár