Með áráttuhegðun í að skoða fasteignavefi

Sigríður Björg Tóm­as­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Kópa­vogs­bæjar, svar­aði sjö spurn­ingum í nýjasta Kjarn­anum.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana?

Það gleður mig fárán­lega mikið að mér hafi tek­ist að ljúka Snæ­fells­jök­uls­hlaup­inu síð­ustu helgi með bros á vör. Sá það ekki fyrir mér þegar ég byrj­aði á nám­skeiði í utan­vega­hlaupi í vor að ég myndi geta hlaupið 22 kíló­metra í júní­lok.

Hvert er þitt helsta áhuga­mál?

Samvera með vinum og fjöl­skyldu, fjöl­miðlar, bóka­lestur, úti­vera og let­ilíf. Svo get ég ekki hætt að skoða fast­eigna­vefi, en það síð­ar­nefnda flokk­ast senni­lega frekar undir áráttu en áhuga­mál.

Hvaða bók lastu síð­ast?

Mamma segir eftir Stine Pilgaard. Skemmti­leg bók um ást­ar­ang­ist, sem er líka ljóm­andi vel þýdd af Stein­unni Stef­áns­dóttur vin­konu minni.

Hvert er þitt upp­á­halds­lag?

Ég hef haldið upp á You Said Somet­hing með PJ Harvey síðan ég heyrði það fyrst, fyrir næstum 14 árum síðan. Frábært lag.

Til hvaða ráð­herra berðu mest traust?

Pass.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú fara?

Mig hefur dreymt lengi um að fara til Nepal, ég myndi láta þann draum ræt­ast.

Hvað fer mest í taug­arnar á þér?

Nei­kvæðni, hroki og húmors­leysi, for­dómar og kven­fyr­ir­lit­ing. Annars er ég frekar jákvæð, nema þegar fólk ryðst fram fyrir mig í mat­vöru­búðum og sæl­gæt­is­sölum í leik­húsum, þá sýður á mér undir fág­uðu yfir­borði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár