Kröfu lögreglunnar aftur hafnað í lekamálinu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur gert aðra til­raun til þess að fá upp­lýs­ingar um það frá frétta­vefnum mbl.is hver það var sem lét rit­stjórn vefs­ins fá upp­lýs­ingar í formi minn­is­blaðs er vörð­uðu mál hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á kröfu lög­regl­unnar um að frétta­stjóri mbl.is, Sunna Ósk Loga­dóttir, gæfi upp heim­ild­ar­mann frétta­vefs­ins og upp­lýsti um það hver það hefði verið sem lak upp­lýs­ing­unum til frétta­vefs­ins, en úrskurðað var í mál­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sunna Ósk hefur neitað að upp­lýsa um heim­ild­ar­mann frétta­vefs­ins í mál­inu, á þeim grund­velli að standa skuli vörð um vernd heim­ild­ar­manna, og því hefur málið komið til kasta dóm­stóla.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var lokað þing­hald vegna þess­arar kröfu lög­regl­unnar. Hæsti­réttur hefur áður fellt dóm á þá leið, 7. maí síð­ast­lið­inn, að þar sem lög­reglan hefði ekki leitað allra leiða til þess að upp­lýsa málið, meðal ann­ars með skýrslu­tökum yfir æðstu starfs­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neytis Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þá væri ekki hægt að fall­ast á þá kröfu lög­regl­unnar að fá upp­gefið án full­nægj­andi rann­sóknar hver hefði lekið upp­lýs­ing­unum til mbl.is.

Grunn­á­stæðan fyrir kröfu lög­regl­unnar er sú að upp­lýsa um hvernig per­sónu­upp­lýs­ingar um Tony Omos, sem fram koma í fyrr­nefndu minn­is­blaði, komust í hendur rit­stjórnar mbl.is en leki á upp­lýs­ing­unum úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu kann að varða við lög að mati lög­reglu.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur nú tekið skýrslur af starfs­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, með það fyrir augum að upp­lýsa um hvernig hið óform­lega minn­is­blað komst í hendur rit­stjórnar mbl.is. Karl Ingi Vil­bergs­son, sviðs­stjóri á ákæru­sviði lög­regl­unnar, fer með málið fyrir hennar hönd.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans rök­studdi dóm­ar­inn í mál­inu úrskurð sinn síð­ast­lið­inn föstu­dag með því að ekki stæðu nægi­lega miklir almanna­hags­munir til þess að mbl.is gæfi upp heim­ild­ar­mann sinn þegar kæmi að fyrr­nefndum leka. Ríka almanna­hags­muni þyrfti til þess að aflétta trún­aði milli rit­stjórnar og heim­ild­ar­manns og ekki væri að sjá að þeir væru nægi­lega miklir í þessu máli. Úrskurð­ur­inn hefur ekki verið birtur enn en búist er við því að Hæsti­réttur komi með end­an­lega nið­ur­stöðu í þetta álita­mál í næstu viku, þar sem lög­reglan hefur kært nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms til Hæsta­réttar með það fyrir augum að finna svarið við því hver lak upp­lýs­ing­unum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár