Ekkert bannar Hönnu Birnu að tjá sig um lekamálið

Hvorki lög­reglu­yf­ir­völd né Ríks­sak­sókn­ari hafa meinað Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra að tjá sig opin­ber­lega um leka­málið svo­kall­aða í fjöl­miðlum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Í sjón­varps­við­tali við Valgeir Örn Ragn­ars­son frétta­mann hjá RÚV, á tröppum stjórn­ar­ráðs­ins í morgun, sagði Hanna Birna hins vegar að hún geti ekki tjáð sig um málið efn­is­lega fyrr en rann­sókn þess lýkur. Þangað til geti máls­að­ilar ekki varið sig á meðan málið sé til rann­sóknar.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra, Þórey Vil­hjálms­dóttir og Gísli Freyr Val­dórs­son aðstoð­ar­menn ráð­herra hafa verið yfir­heyrð vegna leka­máls­ins, ásamt fimm starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins sem bendl­aðir eru við málið. Heim­ildir Kjarnans herma að ein­hverjir átt­menn­ing­anna hafi rétt­ar­stöðu sak­born­inga við rann­sókn máls­ins. Kjarninn hefur hvorki upp­lýs­ingar um hver þeirra hafi rétt­ar­stöðu sak­born­ings, né hvort Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra sé ein þeirra.

Staðfestir í viðtali að skjalið hafi verið unnið í ráðuneytinu


Frá því að Hæsti­réttur stað­festi úrskurð hér­aðs­dóms á föstu­dag­inn, þar sem kröfu lög­reglu um að frétta­stjóri mbl.is yrði gert að svara spurn­ingum um til­urð fréttar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem sögð var byggja á marg­um­ræddu minn­is­blaði, var hafnað, hefur þögn inn­an­rík­is­ráð­herra verið ærandi.

Í dómi Hæsta­réttar komu nefni­lega fram upp­lýs­ingar sem varpa nokkru ljósi á málið. Þrátt fyrir ítrek­aðar full­yrð­ingar Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, í fjöl­miðlum og í ræðu­stól Alþingis, um að umrædd gögn um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos væru ekki sam­bæri­leg við nein gögn í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, hefur rann­sókn lög­reglu leitt í ljós að minn­is­blaðið, sem rataði í hendur fjöl­miðla, hafi í raun verið samið í ráðu­neyti Hönnu Birnu.

Frétta­mað­ur­inn Valgeir Örn, spurði Hönnu Birnu út í full­yrð­ingar ráð­herr­ans á tröppum stjórn­ar­ráðs­ins. Hanna Birna svar­aði: "Ég ítreka það sem ég segi. Ég get ekki og mun ekki tjá mig um málið efn­is­lega þannig að ég get ekki útskýrt það fyrr en rann­sókn er lokið og málið liggur fyrir." Aðspurð hvers vegna umrætt skjal hafi verið búið til, svar­aði Inn­an­rík­is­ráð­herra því til að það hafi verið algjör­lega hefð­bundið og alvana­legt sé að taka saman ákveðin gögn til að átta sig á sögu mála. Svar Hönnu Birnu stað­festir þá end­an­lega að minn­is­blaðið hafi verið unnið í ráðu­neyt­inu hennar.

Hönnu Birnu frjálst að tjá sig um lekamálið


Í áður­nefndum dómi Hæsta­réttar kemur fram að lög­regla telji umrætt minn­is­blað hafa verið lekið til að sverta mann­orð Tony Omos. Aðspurð um afstöðu lög­reglu svar­aði Hanna Birna: "Ég get ekk­ert tjáð mig um þessi ummæli lög­regl­unnar og ég ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég get ekki tjáð mig um málið efn­is­lega á meðan það er í rann­sókn." Enn fremur full­yrti ráð­herr­ann að hún hafi ekk­ert að fela og málið sé póli­tískur spuni.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur hvorki lög­regla né Rík­is­sak­sókn­ari farið þess á leit við Hönnu Birnu að hún tjái sig ekki opin­ber­lega um leka­málið. Og þá er frá­leitt að lög­reglu­yf­ir­völd hafi bannað Inn­an­rík­is­ráð­herra að tjá sig um málið. Ef lög­regla hefur áhyggjur af því að ein­stak­lingar tjái sig um mál sem eru til rann­sóknar, með rann­sókn­ar­hags­muni að leið­ar­ljósi, hefur lög­regla það eina úrræði að krefj­ast gæslu­varð­halds yfir við­kom­andi. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir Inn­an­rík­is­ráð­herra má því og getur tjáð sig um málið kjósi hún svo. Það hefur hún hins vegar ekki gert. Þá eru mögu­leg rök um að hún geti ekki tjáð sig um lög­reglu­rann­sókn sem yfir­maður lög­reglu­mála í land­inu ansi hald­lítil, þar sem hún kaus sjálf að víkja ekki sæti þrátt fyrir að ráðu­neyti hennar væri til rann­sóknar.

Íhuga að láta reyna á trúnað við heimildamann fyrir dómi


Mikið hefur verið gert úr því hvort um eig­in­legt minn­is­blað sé að ræða. Heim­ildir Kjarnans herma að ákæru­valdið geri engan grein­ar­mun á því hvort skjalið hafi verið minn­is­blað eða sam­an­tekt, eins og inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur haldið fram. Um sé að ræða trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem lekið hafi verið til fjöl­miðla, og þá gildi engu á hvaða formi þær séu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans íhugar nú Rík­is­sak­sókn­ari að láta á það reyna fyrir hér­aðs­dómi að trún­aði mbl.is við heim­ilda­mann­inn, sem kom minn­is­blað­inu í hendur fjöl­mið­ils­ins, verði aflétt. Hér­aðs­dómur hafn­aði kröfu lög­reglu þess efnis, sem leiddi til áður­nefnds dóms Hæsta­réttar, með þeim rökum að lög­regla hafi ekki leitað allra leiða til að kom­ast að því hver lak minn­is­blað­inu. Síðan þá hefur lög­regla tekið skýrslur af Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, Þóreyju Vil­hjálms­dóttur og Gísla Frey Val­dórs­syni aðstoð­ar­mönnum ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra, skrif­stofu­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og þremur lög­fræð­ingum, ásamt því að afla sér frek­ari gagna og skoða tölvu­pósta.

Þá skal því haldið til haga, að rann­sókn máls­ins er byggð á því að eitt­hvað sak­næmt hafi átt sér stað, en feli leki minn­is­blaðs­ins í sér að sá sem lak hafi mis­notað stöðu sína getur það varðað hinn brot­lega allt að tveggja ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár