Lögreglustjórinn vísaði til „listans“ í tölvupósti til ráðherra en segir núna að hann sé ekki til

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri vildi koma til­teknum atriðum á fram­færi við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún minnt­ist á lista með und­ir­skriftum lög­reglu­manna sem sagðir voru van­treysta til­teknum lög­reglu­full­trúa. Nú full­yrðir hún við lög­mann manns­ins að þessi listi sé ekki til.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vís­aði til þess í tölvu­pósti sem hún sendi meðal ann­ars Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og Ragn­hildi Hjalta­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra þann 25. jan­úar síð­ast­lið­inn að lög­reglu­menn úr fíkni­efna­deild hefðu skráð nafn sitt á lista til að lýsa van­trausti í garð sam­starfs­manns síns, manns­ins sem kall­aður hefur verið lög­reglu­full­trúi x í umfjöllun Stund­ar­innar og var rang­lega sak­aður um óeðli­leg sam­skipti við aðila úr fíkni­efna­heim­inum.

Nýlega sendi Kristján B. Thorlacius, lög­maður lög­reglu­full­trú­ans, Sigríði Björk tölvu­póst og fór fram á að umræddur listi yrði afhentur skjól­stæð­ingi sínum. Benti lög­mað­ur­inn á að ítrekað hefði verið vísað til list­ans við með­ferð máls­ins og að full­yrt hefði verið að þar væri að finna nöfn og und­ir­skriftir lög­reglu­manna sem kvartað hefðu til lög­reglu­stjóra vegna lög­reglu­full­trúa x. Sigríður Björk svar­aði beiðn­inni 11. júlí síð­ast­lið­inn og sagði að í máli lög­reglu­full­trú­ans væri ekki að finna neinn slíkan lista.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur Sigríður Björk ítrekað vísað til „list­ans“ í umræðum um mál­efni fíkni­efna­deildar. „Hún var alltaf að veifa þessu, að níu starfs­menn – meiri­hluti fíkni­efna­deildar – hefðu skilað til sín und­ir­rit­aðri van­trausts­yf­ir­lýs­ingu,“ segir einn af heim­ild­ar­mönnum blaðs­ins. Þremur öðrum við­mæl­endum blaða­manns innan úr lög­reglu ber einnig saman um þetta. Þá eru dæmi um að lög­reglu­menn hafi sjálfir frétt af því að nöfn þeirra væru á „list­anum“ hennar Sigríðar Bjarkar en komið af fjöllum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár