Missti brosið eftir bótox

Íslenskur húð­læknir seldi við­mæl­anda Stund­ar­innar fyrst þá hug­mynd að hún væri komin með hrukkur sem yrði að laga og síðan lausn­ina, bótox­með­ferð. Í því ferli gerði hann lítið úr áhyggjum hennar, sem reynd­ust rétt­mætar. Enn virð­ist hann ekki hafa til­kynnt afleið­ing­arnar til Lyfja­stofn­unar.

Missti brosið eftir bótox
Yfir­liðs­til­finn­ing Við fyrstu sprautu fékk konan yfir­liðs­til­finn­ingu sem hvarf ekki frá henni fyrr en með­ferð­inni var lokið. Henni leið illa allan dag­inn og vakn­aði svo upp um nótt­ina með vökva undir aug­unum. Næsta dag var hún þrútin og marin, en átti eftir að upp­lifa fleiri og langvar­andi auka­verk­anir. Myndin er úr mynd­banka. Mynd: Shutterstock

„Ég á ung­lings­dóttur og bað hana um að gera ekki sömu mis­tök og mamma sín. Ég vil vara fólk við þessu,“ segir íslensk kona sem fór í bótox, vin­sæl­ustu fegr­un­ar­að­gerð lands­ins. Efnið fór illa í lík­ama hennar og hún þurfti ekki að lesa sér lengi til á net­inu til að átta sig á því að hún er alls ekki ein í þeirri stöðu. Hún hafði hins vegar verið hvött áfram af húð­lækn­inum sínum, sem benti henni fyrst á hrukk­urnar og fram­kvæmdi síðan aðgerð­ina. Á milli þeirra ríkti traust og hún trúði því þegar lækn­ir­inn taldi henni trú um að það væru allir að gera þetta og þetta væri ekk­ert mál. Annað átti eftir að koma á dag­inn.

 

Finnur fyrir skömm    

Konan sem um ræðir skamm­ast sín svo mikið fyrir að hafa farið þessa leið að hún treystir sér ekki til að koma fram undir nafni. Hún er vel menntuð og í góðri stöðu hjá virtri stofnun. Hún hefur alltaf hugsað vel um sig, litið vel út og verið sátt. Hún fór ekki til læknis til þess að óska eftir bótoxi, heldur var það hann sem vakti máls á hrukkum sem voru farnar að mynd­ast á enn­inu á henni. Fram að því hafði hún lítið sem ekk­ert spáð í þessar hrukkur, en sá svo að það var rétt, hún var að eld­ast og hrukk­urnar farnar að mynd­ast á enni hennar. Síðan bauð lækn­ir­inn lausn­ina, að sprauta bótoxi í ennið á  henni. Fyrir það tók hann um 80 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár