Vill eignast vinkonu

Þórunn Sandholt hafði misst tengslin við vin­konur sínar. Hún var ein­mana og greip til sinna eigin ráða. Við­brögðin létu ekki á sér standa.

Óskaði eftir vinkonum á Facebook
Óskaði eftir vin­konum á Facebook Þórunn óskaði eftir vin­konu á Facebook-síð­unni Góða systir eftir að hafa misst tengsl við vin­konur sínar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þórunn Sandholt, 67 ára gömul kona, hefur misst sam­band við flestar sínar vin­konur. Hún greip til þess ráðs að lýsa eftir vinum á sam­fé­lags­miðlum á dög­unum.

Þórunn veikt­ist fyrir 20 árum af heila­bólgu. Í kjöl­farið flosn­aði upp úr vin­skap hennar við aðra. „Við vorum nokkrar sem vorum alltaf í sam­bandi og þær hringdu mikið í mig. En síðan hættu þær að hafa sam­band.“

Hún hefur aldrei náð sér af veik­ind­unum að fullu. „Ég lam­að­ist vinstra megin og veik­indin hafa orðið til þess að ég er ennþá veik. Það er málið.“

En nú vill hún eign­ast vin­konur á ný.

Einangruð

Þórunn á stóra fjöl­skyldu – systk­ini, börn og barna­börn, en hluti barna hennar og barna­barna býr erlendis – en hún segir að hún sakni þess að eiga vin­konu.

Hún segir að það sé hræði­legt að vera ein­angruð að því leyti.

„Ég sit oft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár