Viðsnúningur á vefsíðu sjálfstæðismanna

Loforð um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB var nýlega fjar­lægt og bætt við stefn­una að ekki yrðu teknar upp við­ræður að nýju.

Viðsnúningur á vefsíðu sjálfstæðismanna
Vefsíða Sjálf­stæð­is­flokks­ins Sjá má for­mann og vara­for­mann flokks­ins sé farið inn á xd.is

Á heima­síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins má finna stefnu flokks­ins í mörgum helstu mál­efnum íslensk sam­fé­lags svo sem menn­ingu, menntun og Evr­ópu­málum.

Orðalagi í sein­asta flokknum var þó skyndi­lega breytt nýverið. Þar sem áður stóð „kjós­endur ákveði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hvort aðild­ar­við­ræðum skuli haldið áfram“ stendur nú „aðild­ar­við­ræðum var hætt árið 2013 og ekki eru uppi áform um að taka þær upp að nýju“. Þetta má sjá á vefsafni Þjóð­ar­bók­hlöð­unnar en text­inn var óbreyttur frá febr­úar árið 2014, að minnsta kosti, þar til honum var breytt nýverið. Óljóst er hvenær vef­síð­unni var nákvæm­lega breytt en fyrra orða­lagið var enn á vefnum í upp­hafi febr­úar síð­ast­lið­ins.

Liður í viðsnúningi

Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að lýsa yfir í bréfi til Evr­ópu­sam­bands­ins að Ísland sé ekki lengur í hópi umsókn­ar­ríkja hefur vakið hörð við­brögð frá stjórn­ar­and­stöð­unni. Bæði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lof­uðu í kosn­inga­bar­átt­unni að kosið yrði um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið. Ljóst er að breyt­ingin á vef­síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins er liður í við­snún­ingi flokks­ins við þeim lof­orðum.

Sambærilegt mál árið 2012

Árið 2012 fjall­aði DV um nokkuð sam­bæri­legt mál en þá var kafli sem fjall­aði um útrás atvinnu­lífs­ins í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjar­lægður af vef­síðu flokks­ins. Eft­ir­far­andi klausur voru fjar­lægðar með öllu af vef­síð­unni:

Útrás atvinnu­lífs­ins

Þegar horft er til atvinnu­lífs­ins hafa fyrstu ár nýrrar aldar m.a. ein­kennst af miklum eigna­til­færslum og útrás íslenskra fyr­ir­tækja á erlendri grund. Atvinnu­lífið hefur nýtt sér til fulls það frelsi til athafna sem stjórn­völd komu á í lok 20. aldar og starfs­svæðið er heim­ur­inn allur. Ítök stjórn­mála­manna og opin­berra aðila í atvinnu­líf­inu hafa aldrei verið minni og fyr­ir­tækin aldrei verið öfl­ugri.

 Ný for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins haustið 2005 lét Davíð Oddsson af for­mennsku í flokknum eftir rúm 14 árang­urs­rík ár. Geir H. Haarde, sem verið hafði vara­for­maður frá árinu 1999, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hlutu glæsi­lega kosn­ingu sem for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá lét Kjartan Gunn­ars­son af starfi fram­kvæmda­stjóra um ára­mótin 2006/2007 eftir 26 far­sæl ár í því starfi og við tók Andri Ótt­ars­son. Nýju fólki fylgja nýir straumar og áherslur breyt­ast en grund­völl­ur­inn er óbreyttur og áfram sá sami, sjálf­stæð­is­stefnan, trúin á frelsi ein­stak­lings­ins og stuðn­ingur við þá sem á þurfa að halda.“

Textinn áður
Textinn áður Svona var text­inn á vef­síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í upp­hafi síð­asta mán­aðar.
 

Textinn í dag
Textinn í dag Textinn er óbreyttur fyrir utan sein­ustu setn­ing­una.
 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár