Viðskiptafléttur í Vatnsmýrinni

Félagið sem hyggst reisa stærsta hótel Íslands í Vatns­mýr­inni var áður í eigu Tortóla­fé­lags. Í dag er Jóhann Hall­dórs­son eig­andi þess en félagið átti áður höf­uð­stöðvar Íslenskrar erfða­grein­ingar. Vís­indag­arðar Há­skóla Íslands keyptu eign­ina á nærri 7 millj­arða.

Viðskiptafléttur í Vatnsmýrinni
Eigandi S8 Jóhann Hall­dórs­son er núver­andi eig­andi félags­ins.

Í kvöld­fréttum RÚV í gær var greint frá því að eign­ar­halds­fé­lagið S8 ehf. hygð­ist reisa átján þús­und fer­metra hótel í Vatns­mýr­inni á næstu árum. Ef hót­elið verður að veru­leika verður það eitt það stærsta á Íslandi. Félagið, sem lög­mað­ur­inn Jóhann Hall­dórs­son er for­svari fyrir, var áður í eigu Tórtóla­fé­lags, Tenco Holding Services SA. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum félags­ins fyrir árið 2008. Eig­anda­skipti hafa þó orðið á ein­hverjum tíma­punkti frá því en sam­kvæmt nýjasta árs­reikn­ingi sem er fyrir árið 2013 er félagið í eigu Angus ehf, sem er skráð í eigu Jóhanns Hall­dórs­sonar.

S8 ehf, sem var í eigu Tortóla­fé­lags og hyggst reisa hótel í Vatns­mýr­inni, skil­aði engum árs­reikn­ingum yfir þetta fimm ára tíma­bil sem telja má sér­kenni­legt.

Talsvert var fjallað um félagið fyrir nokkrum árum í tengslum við eign­ar­hald þess á höf­uð­stöðvum erfða­tækn­i­s­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar erfða­grein­ingar við Sturlu­götu 8 í Vatns­mýr­inni. Greint var frá því árið 2013 félagið hefði selt eign­ina til Vís­inda­garða Háskóla Íslands. Morg­un­blaðið greindi frá síðar á sama ári að kaup­verð hafi verið 6,75 millj­arðar króna. Þar áður greindi DV frá því að leigu­verð Íslenskar erfða­grein­ingu á hús­næð­inu hefði verið í hærra lagi, eða um 570 millj­ónir á ári. 

Félagið S8 var stofnað árið 2005 og virð­ist fyrst og fremst verið ætlað að halda utan um eign­ar­hald á Sturlu­götu 8. Húsið hafði áður verið í eigu eign­ar­halds­fé­lags­ins Fest­ingar sem var í eigu Ólafs Ólafs­sonar, nú fanga á Kvía­bryggju, og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sunds í eigu Jóns Krist­jáns­sonar og Páls Þórs Magn­ús­sonar. Jóhann núver­andi eig­andi S8 ehf. var fram­kvæmda­stjóri Fest­ingar. Þegar félagið var stofnað var Jóhann eini eig­andi þess en vend­ing varð á því árið 2007 þegar eign­ar­haldið á hlutafé færð­ist yfir til fyrr­nefnds Tortóla­fé­lags.

Samkvæmt frétt RÚV um hót­elið í Vatns­mýr­inni hefur verk­efnið ekki verið fjár­magnað. „En síðan verður það vænt­an­lega ein­hver af íslensku við­skipta­bönk­unum sem mun styðja við verk­efnið,“ sagði Jóhann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár