Send heim af Landspítalanum og sagt að fylgjast með fréttum

Verkfall dregur úr öryggi sjúk­linga: „Ekki hægt að reka sjúkra­hús án lyk­il­stétta.“ Um 60% mynd­grein­inga­rann­sókna verið frestað og um 200 skurð­að­gerðum. Fleiri verk­föll framundan.

Send heim af Landspítalanum og sagt að fylgjast með fréttum

„Það er alveg ljóst að starf­semi sem er þegar mjög umfangs­mikil og mjög við­kvæm á góðum degi verður fyrir miklum trufl­unum þegar svona lagað brestur á,“ segir Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Land­spít­ala, í sam­tali við Stundina. Hann segir verk­föll líf­einda­fræð­inga, geisla­fræð­inga og nátt­úru­fræð­inga hafa mjög mikil áhrif á starf­semi spít­al­ans en þessar stéttir lögðu niður störf fyrir rúmri viku síðan. „Þarna er um að ræða mik­il­vægar stéttir í starfi spít­al­ans og ljóst að bæði sjúk­lingar og aðstand­endur munu verða fyrir trufl­unum af þessu,“ segir Ólafur, sem bindur vonir við að deilu­að­ilar muni brátt kom­ast að sam­komu­lagi.  

Reglubundin starfsemi lömuð

Allar truflanir draga úr öryggi
Allar trufl­anir draga úr öryggi Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á Land­spít­ala.

Frestað hefur þurft um 60% mynd­grein­inga­rann­sókna við Land­spít­ala frá því verk­föll hófust, um 50% blóð­rann­sókna og þá hefur um 200 skurð­að­gerðum verið frestað. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­ala eru áhrifin á starf­sem­ina mun meiri en voru af lækna­verk­fall­inu í vetur, sem ræðst fyrst og síð­ast af því að nú er aldrei gert hlé á verk­falls­að­gerðum. Stærsti hluti starf­semi Land­spít­al­ans er reglu­bundin starf­semi; skipu­lagðar aðgerðir, skipu­lagðar með­ferðir og svo fram­vegis. Þessi starf­semi er nú lömuð. Allri bráða­þjón­ustu er hins vegar enn sinnt og mik­il­vægt að fólk veigri sér ekki við að leita hjálpar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár