Varað við dularfullu fyrirtæki Íslendings

Einar seg­ist hættur í örygg­is­brans­anum

Varað við dularfullu fyrirtæki Íslendings
Hættur Einar seg­ist hættur í örygg­is­brans­anum.

Einar Har­alds­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður á miðjum aldri, er sak­aður um umfangs­mikla blekk­inga-­ og fjár­plógs­starf­semi á tveimur erlendum vef­síðum sem fjalla um vopna-­ og örygg­is­mál. Sjálfur hefur hann þver­tekið fyrir að hafa óhreint mjöl í poka­horn­inu en gefið þær skýr­ingar að hann hafi verið leiddur í gildru net­þrjóta.

Íslend­ing­ur­inn titlar sig fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins Ealgon Security & Ops, en á vef þess kemur fram að Einar sé „frægur sér­fræð­ingur á sviði örygg­is­mála“ og að fyr­ir­tækið sér­hæfi sig meðal ann­ars í her­þjálfun, björgun gísla og bar­áttu gegn hryðju­verkum. Í fyrra aug­lýsti Ealgon laus störf í Líbíu, en umsækj­endur voru ein­ungis beðnir um að sýna fer­il­skrá sína og inna af hendi 600 doll­ara fyr­ir­fram­greiðslu vegna afgreiðslu vega­bréfs­á­rit­unar.

Varað er ein­dregið við þess­ari dul­ar­fullu atvinnu­aug­lýs­ingu á fir­e­arm­spor­tal.com og cp­-dom­ain.com, vef­síðum sem bjóða upp á umræðu­vett­vang fyrir fólk sem starfar í öryggis-­ og eft­ir­lits­iðn­að­inum. Þar er til að mynda bent á að leið­ar­vísir fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár