Útgáfufélagið var skráð á barnsmóðurina - „Ógurlega fegin að vera laus undan þessu“

Kristín Þor­steins­dóttir, barns­móðir Ámunda Ámunda­sonar, hefur verið eini eig­andi Fótspors um ára­bil. Greint var frá því um helg­ina að Vef­pressan í eigu Björns Inga Hrafns­sonar hefði keypt útgáfu­rétt­inn á öllum tólf blöðum sem gefin eru út af Fótspori.

Útgáfufélagið var skráð á barnsmóðurina - „Ógurlega fegin að vera laus undan þessu“
Björn Ingi Hrafns­son er helsti eig­andi Vef­pressunnar sem keypt hefur útgáfu­rétt­indi á öllum tólf blöðum Fótspors.

Blaða­út­gáfan Fótspor, sem gaf út 12 blöð um allt land þar til henni var lokað um helg­ina, hefur verið skráð sem eign barns­móður útgáf­and­ans frá upp­hafi. 

Fram hefur komið að Ámundi Ámunda­son útgef­andi hafi selt Vef­press­unni og Birni Inga Hrafns­syni útgáfu­rétt­inn á blöð­unum tólf og sagt upp rit­stjórum þeirra. Rit­stjór­arnir fengu viku­upp­sagn­ar­frest, þar sem þeir voru verk­takar.

Ámundi hefur verið skráður eig­andi 100 pró­sent hluta­fjár á vef Fjöl­miðla­nefndar, en eign­ar­haldið hefur hins vegar verið í höndum Krist­ínar Ástríðar Þor­steins­dóttur, bók­ara hjá vinnu­véla­söl­unni Vélafli.

Ámundi ekki skráður eigandi

Samkvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2014 er eini eig­andi félags­ins Fótspor ehf., útgáfu­fé­lagi blaða svo sem Reykja­vík Vikublað og Akureyri Vikublað, Kristín Ástríður Þor­steins­dóttir, en ekki Ámundi Ámunda­son. Líkt og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum keypti Vef­pressan útgáfu­rétt­indi á öllum tólf blöðum sem félagið hefur gefið út. Kristín starfar sem bók­ari hjá Vélafli og er barns­móðir Ámunda.  Hún hefur verið eini eig­andi félags­ins frá í það minnsta árinu 2003 en frá því ári er elsti aðgengi­legi árs­reikn­ingur félags­ins.

Samkvæmt heima­síðu Fótspors hóf fyr­ir­tækið blaða­út­gáfu á haust­mán­uðum 2008 og hefur Kristín því verið eini eig­andi félags­ins allan þann tíma sem fyr­ir­tækið hefur stundað útgáfu. Í sam­tali við Stundina seg­ist Kristín hafa selt félagið nýverið og sé fegin að vera laus við blöðin.

Skráður eigandi skömmu fyrir söluna

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár