Íslenskar konur deila sögum af fyrsta kynferðislega ofbeldinu

Í kjöl­far ummæla Donalds Trump um að hann mætti áreita konur vegna frægðar sinnar deildi kanadíski rit­höf­und­ur­inn Kelly Oxford reynslu sinni af fyrsta kyn­ferð­is­legu ofbeld­inu sem hún varð fyrir. Hildur Lilli­endahl opn­aði á umræð­una fyrir íslenska Twitter-not­endur og er þar nú að finna fjöld­ann allan af slá­andi reynslu­sögum.

Íslenskar konur deila sögum af fyrsta kynferðislega ofbeldinu
Hildur, Trump og Kelly Oxford Atburð­ar­rásin hefur verið hröð, eins og oft er á gervi­hnatta­öld.

 *TW* Rétt er að vara sterk­lega við sumum af þeim frá­sögnum sem eru hér að neðan. Þolendur kyn­ferð­is­brota eða aðrir með áfallastreituröskun ættu ekki að lesa frétt­ina nema að vand­lega íhug­uðu máli.

Íslenskar konur deila nú sögum á Twitter af fyrstu kyn­ferð­is­brot­unum sem þær urðu fyrir. Í kjöl­far þess að Hildur Lilli­endahl benti á tíst kanadíska rit­höf­und­ar­ins Kelly Oxford þar sem hún hvetur konur til þess að deila reynslu sinni hafa íslenskar konur nú opnað á sínar sögur.  

Fyrir stuttu birt­ist mynd­band af Donald Trump frá 2005 þar sem hann gortar sig af því að hann geti „gripið“ konur „í pík­una“ af því hann er frægur. Í kjöl­far birt­ingar mynd­bands­ins sendi kanadíski rit­höf­und­ur­inn Kelly Oxford frá sér skila­boð, síð­asta föstu­dag, þar sem hún hvatti konur til þess að deila fyrsta skipt­inu sem þær urðu fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Hennar skila­boð voru á þessa leið: „Konur: Tístið til mín fyrstu árásinni ykkar. Þetta er ekki bara töl­fræði. Ég skal vera fyrst: Gamall maður í strætó grípur í „pík­una“ á mér og brosir til mín, ég er 12 ára.“

Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa, en seinna sama dag setti Oxford skila­boð inn á Twitter: „Ég fæ nú sendar 2 sögur um kyn­ferð­is­legt ofbeldi á sek­úndu. Þeir sem afneita nauðg­un­ar­menn­ingu, vin­sam­leg­ast lítið á tíma­lín­una mína núna.“

Daginn eftir, þann 8. októ­ber, var íslenska Twitter-sam­fé­lagið búið að taka við sér. Hildur Lilli­endahl vakti þá athygli á því sem hafði verið að ger­ast á síðu Oxford, og deildi stuttu seinna sinni fyrstu reynslu af ofbeldi:

Undir þess­ari deil­ingu Hildar er, þegar þetta er skrifað, kom­inn fjöld­inn allur af frá­sögnum kvenna af fyrstu upp­lifun þeirra af kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Sumar vísa í dóms­mál sem urðu til, aðrar segj­ast ekki muna hversu gamlar þær voru þegar mis­notk­unin hófst og ein­hverjar þeirra treysta sér ekki til þess að koma fram undir nafni. Hér má finna sumar af þeim deil­ingum:

Hildur Lilliendahl: „Trump er alls staðar“

Hildur seg­ist lengi hafa fylgst með Kelly Oxford á Twitter og að það fyrsta sem hún hugs­aði þegar hún sá við­brögðin hjá henni hafi verið hvort íslenskar konur gæti verið mót­tæki­legar fyrir svona átaki. „Tengslin við kven­hatandi for­seta­fram­bjóð­and­ann eru kannski helst óbein, hans athuga­semdir eru ástæðan fyrir því að Kelly fór af stað en það er mik­il­vægt að gleyma því ekki að Trump er alls staðar. Eins og Lindy West orð­aði það svo frá­bær­lega í grein í New York Times um helg­ina; allar konur þekkja útgáfu af Donald Trump.“ Segir hún flestar konur hafa þekkt fleiri svona karl­menn en þær kæra sig um að muna. „Hann er tákn­mynd allra karl­anna sem hafa í gegnum tíð­ina komið fram við okkur eins og við skuldum þeim eitt­hvað og það hvort við segjum nei eða já er algjört auka­at­riði fyrir þeim.“ [thum hil­hil]

„Konur hafa verið neyddar til að sjá hluti sem þær vilja ekki sjá, snerta lík­ama sem þær vilja ekki snerta, karlar hafa þröngvað sér kyn­ferð­is­lega inn í þær og upp á þær alla tíð.“

Þrátt fyrir mik­inn fjölda frá­sagna segir Hildur það ekki koma sér bein­línis á óvart. „Ég var með efa­semdir um það í upp­hafi að margar konur myndu taka þátt, ein­fald­lega vegna þess að hugs­an­lega hefði dregið úr eft­ir­spurn­inni eftir tæki­færum til að segja frá eftir mikla og opna umræðu um kyn­ferð­is­brot og kúgun af ýmsum toga undir fjöl­mörgum myllu­merkjum og her­ferðum und­an­farin miss­eri, allt frá albú­m­inu mínu um karla sem hata konur og til sam­fé­lags­miðla­her­ferð­anna #þöggun, #kon­ur­tala, #éger­ekkitabú, #6dags­leik­inn, #whenIwas, #freethenipple, #everyda­ysex­ism og svo fram­vegis.“

Hildur segir þær efa­semdir sínar hins vegar ekki hafa átt rétt á sér. Konur hafi alla tíð þurft að þegja yfir kyn­ferð­is­of­beldi og að þær séu aug­ljós­lega ekki búnar að fá nóg af því að mega tala um það. „Það er ekk­ert við fjölda þess­ara frá­sagna sem ætti að koma okkur á óvart. Kyn­ferð­is­of­beldi í víðum skiln­ingi er eitt­hvað sem ég þori að full­yrða að flestar konur þekki af eigin reynslu. Konur hafa verið neyddar til að sjá hluti sem þær vilja ekki sjá, snerta lík­ama sem þær vilja ekki snerta, karlar hafa þröngvað sér kyn­ferð­is­lega inn í þær og upp á þær alla tíð og stundum eru þær svo vanar því að það þarf sér­stakt átak svo þær átti sig á því að um ofbeldi hafi verið að ræða.“ Segir hún þó ekki þar með sagt að það skilji ekki eftir sig ýmis­konar sár og ör. „Auðvitað grefur það undan sjálfs­mynd konu að vera sagt beint eða óbeint frá unga aldri að hún ráði ekki lík­ama sínum sjálf. Það gefur auga leið.“

Sögurnar sem hafa verið sagðar segir Hildur allar vera skelfilegar og að hún sé ótrú­lega stolt af kon­unum sem hafi staðið upp og sagt frá. „Það er ekki hægt að stöðva heims­far­ald­ur­inn sem ofbeldi gegn konum er ef við getum ekki talað um hann. Að því sögðu er mik­il­vægt að árétta að þetta er væg­ast sagt átak­an­leg lesn­ing og ég mæli ekki með að þolendur eða aðrir með áfallastreituröskun lesi þráð­inn nema að vand­lega íhug­uðu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár