Trúði ekki að mynd af Sigmundi væri raunveruleg

Upp­lýs­inga­full­trúi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra taldi að mynd á Vísi.is væri sett saman með hjálp tölvu­tækn­innar og notuð til að koma höggi á ráð­herr­ann.

Trúði ekki að mynd af Sigmundi væri raunveruleg
Þessi mynd er sam­sett. Mynd: Gunnar V. Andrésson tók myndina af Sigmundi en myndin af Sigurði Má er af Facebook.

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, taldi að mynd sem tekin var á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2011 hefði verið sett saman með hjálp tölvu­tækn­innar og birt í því skyni að koma höggi á for­sæt­is­ráð­herra. 

Taldi hann Vísi.is hafa notað umrædda mynd af Sigmundi Davíð til að styðja þá nið­ur­stöðu Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings í nýlegri fræði­grein að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé orð­inn þjóð­ern­ispopúl­ískur flokkur. Upp­lýs­inga­full­trú­inn hefur nú beðist afsök­unar á ásök­unum sínum.  

„Þetta er samsett mynd“

Þetta má sjá í umræðum á Facebook-síðu Jakobs Bjarnars Grét­ars­sonar blaða­manns, en þar bregst upp­lýs­inga­full­trú­inn af mik­illi hörku við umfjöllun Jakobs á Vísi.is um rann­sókn Eiríks Berg­manns.

„Myndin sem þú notar með af for­sæt­is­ráð­herra Jakob Bjarnar Gret­ars­son - er hún ekki örugg­lega sam­an­sett? Svona til að gefa fræð­unum popúlarísk­ari stimpil eða hvað!“ skrifar Sigurður Már sem var um skeið vara­for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Þá full­yrðir hann í athuga­semd nokkru síðar: „Þetta er sam­sett mynd sem eng­inn veit hver á eða bjó til og er ein­hverra hluta vegna í myndsafni Vísis. Hún er dregin fram þegar þarf að styðja til­tekin „vís­indi“.“

Bendir Sigurður á að Eiríkur Bergmann hafi eitt sinn verið vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Svo virð­ist sem hann telji þetta draga úr trú­verð­ug­leika fræði­greinar Eiríks um þjóð­ern­ispopúl­isma og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Ekki er fjallað um Sam­fylk­ing­una í grein Eiríks.

Sigurði var bent á að myndin er ekki sam­sett, heldur tekin á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir fjórum árum þegar Sig­mundur Davíð stillti sér upp fyrir framan mynd af Fram­sókn­ar­merk­inu og slag­orð­inu „Ísland í von­anna birtu“. Í kjöl­farið baðst Sigurður afsök­unar og sagð­ist hafa haldið að myndin væri sam­sett vegna þess að hún er eignuð Icelandweatherreport.com. „Nú þegar virð­ist hafið yfir vafa að sá ágæti GVA hafi tekið hana biðst ég afsök­unar. Dugar það?“ skrifar Sigurður. Með skamm­stöf­un­inni GVA vísar hann til Gunnars V. Andr­és­sonar, virts blaða­ljós­mynd­ara.

Blaðamaður furðu lostinn

Jakob Bjarnar
Jakob Bjarnar blaða­maður

Stundin ræddi við Jakob Bjarnar, blaða­mann á Vísi, um málið sem honum finnst athygl­is­vert í meira lagi. „Látum nú liggja á milli hluta glós­urnar þar sem upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar vegur að fræði­manna­heiðri Eiríks Bergmann. Lítum jafn­vel hjá ávirð­ing­unum á hendur mér og Vísi... að við séum að birta sam­settar meintar áróð­urs­myndir, til hvers? Til að koma höggi á Sigmund Davíð?“ spyr hann og bætir við: „Hvers konar væn­i­sýki er það?“

„Er hann þá ekki þar með að stað­festa og hnykkja á nið­ur­stöðum þeim sem Eiríkur var að kynna í dag?“

Jakob segir að sér þyki athygl­is­vert að Sigurður Már hafi trúað því að mynd sem Gunnar V. Andr­és­son, reyndur og virtur ljós­mynd­ari, tók á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna árið 2011 væri sam­sett. „Er hann þá ekki þar með að stað­festa og hnykkja á nið­ur­stöðum þeim sem Eiríkur var að kynna í dag? Mér finnst nú ein­hvern veg­inn að Sigurður Már mætti ein­beita sér að því að sinna starfi sínu á þann veg að liðka til fyrir upp­lýs­ingum frá rík­is­stjórn­inni til fjöl­miðla og þar með almenn­ings, fremur en vera á flögri eins og hræ­gammur á Facebook – til að passa uppá sinn mann með mis­góðum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár