Þýska ríkið styrkir WikiLeaks tölvuleik

Tölvu­leikur sem byggir á starf­semi WikiLeaks sam­tak­anna er vænt­an­legur næsta vor. Ágóðinn fer í frek­ari starf­semi sam­tak­anna og í stuðn­ing við upp­ljóstr­ara. Ýmsar fleiri vörur eru vænt­an­legar á markað.

Þýska ríkið styrkir WikiLeaks tölvuleik
Tölvu­leikur í bígerð Ólafur Vignir, fram­kvæmd­ar­stjóri Just Licensing, og Julian Assange, stofn­andi WikiLeaks, vinna nú að því að koma vörum undir merkjum sam­tak­anna í fram­leiðslu og sölu. Mynd/Kolbrún Jóns­dóttir

Gengið hefur verið frá samn­ingum um gerð tölvu­leiks sem byggir á starf­semi WikiLeaks-sam­tak­anna. Bavaria Media, umboðs­að­ili Just Licensing í Þýska­landi, kom að gerð samn­ings­ins við þýska leikja­fram­leið­and­ann Tellux. Þróun og mark­aðs­setn­ing leikj­ar­ins er að fullu fjár­mögnuð. Athygli vekur að þýska ríkið styrkir þróun leikj­ar­ins auk þess sem það leggur til um 25 pró­sent af kostn­aði á móti Bavaria Media. Ólafur Vignir Sig­ur­vins­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Just Licensing, sem heldur utan um vöru­merkin „WikiLeaks“ og „Julian Assange“, stað­festir þetta í sam­tali við Stundina, en fyr­ir­tækið stefnir á enn frek­ari land­vinn­inga með vöru­merki sín. Leik­ur­inn mun koma út undir merkjum WikiLeaks í vor. 

Þjóðverjar hrifnir

Sögusvið tölvu­leikj­ar­ins, sem ber vinnu­heitið „Leaked“, er í dystópískri fram­tíð þar sem stór­fyr­ir­tæki og rík­is­stjórnir fylgj­ast með hverju raf­rænu skrefi þegn­anna. Spil­ar­inn er í hlut­verki rann­sókn­ar­blaða­manns sem hefur undir höndum dulkóð­aðan gagna­pakka sem gæti bjargað lífi hans en til að afkóða pakk­ann þarf hann að leysa ýmsar þrautir og gátur. Þá eru útsend­arar á vegum ráð­andi afla á eftir honum. Ólafur Vignir bendir á að leik­ur­inn verði í anda gátu­leikj­ar­ins ROOM sem fæst á iphone og android. „Hann verður á þeim plat­formum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár