Þreytt á spurningum um „happy ending“

Alída Guð­munds­dóttir, nem­andi í nuddi, var áreitt af karl­manni sem vildi borga fyrir kyn­líf. Hún seg­ist vera komin með nóg af brönd­urum um „happy end­ing“. „Af því að ég er ung kona í þessu starfi þá er litið svo á að maður sé með „happy end­ing“ í gangi,“ segir Alída.

Þreytt á spurningum um „happy ending“

Alída Guð­munds­dóttir, nem­andi í nuddi við Nudd­skóla Íslands, seg­ist blöskra hvernig fólk gerir grín að kyn­ferð­is­áreitni þegar það spyr létt hvort hún stundi „happy end­ing“ í nudd­inu. Hún seg­ist ekki hafa húmor fyrir þessum brand­ara eftir að hafa lent í því um síð­ustu helgi að karl­maður í nuddi greip í hana og spurði hvað hún rukk­aði fyrir kyn­líf. Í gær skrif­aði hún stöðu­færslu á Facebook sem vakið hefur athygli. Alída hefur aðeins stundað verk­legt nám frá því í haust, svo það leið ekki langur tími þar til hún lenti í því að nudd­þegi fal­að­ist eftir vændi.

„Þá er maður allt í einu í aðstæðum þar fólk er að grípa í þig og vill kyn­líf.“

„Þessi óþægi­lega lífs­reynsla stað­festi fyrir mér hvað það er rangur hugs­un­ar­háttur í garð þess­arar starfs­stéttar. Frá því að ég byrj­aði í þessu á sein­asta ári þá hef ég ítrekað fengið þetta: „Hvað seg­irðu? Er ekki „happy end­ing“?“ Það er verið að segja þetta sagt í djóki en þetta er svo alvar­legt þegar maður er með einum ein­stak­lingi inni í her­bergi og er að stunda sína vinnu, sem maður hefur lagt mikið á sig að læra, þá er maður allt í einu í aðstæðum þar sem fólk grípur í þig og vill kyn­líf, þetta „happy end­ing“. Ég bara get ekki tekið þessu djóki lengur og hlegið að þessu eftir að ég lenti í þessu,“ segir Alída í sam­tali við Stundina. „Happy end­ing“ í sam­hengi nudds þýðir yfir­leitt að nudd­ar­inn frói kúnna eða veiti honum munn­mök.

Nudda bara aðrar konur

Alída segir að á þeim stutta tíma sem er lið­inn frá atvik­inu um sein­ustu helgi hafi starfi hennar í þrí­gang verið líkt við vændi. Hún spyr sig hvort ástæðan fyrir því að hún hafi lent í þessu atviki, sem og þessum brönd­urum, sé að hún sé ung kona í þessu starfi. „Við vorum að byrja í nýjum áfanga og ein kona þar, sem er frá­bær, var að segja að það sé ekki spurn­ing ef, heldur hvenær svona ger­ist. Við vorum að tala um það í tíma að sumir kven­kyns nudd­arar taki bara aðra konur í nudd af því að þær eru búnar að lenda í svo miklu áreiti. Þetta var eitt­hvað sem ég vissi ekki af áður en ég fór út í þetta, að þetta væri svona mikið vanda­mál. Ætli þetta komi líka fyrir karl­menn sem eru stórir, stæði­legir og kannski íþrótta­nudd­arar? Ætli þeir fái svona athuga­semdir frá fólki, hvort þeir séu að bjóða upp á „happy end­ing“?“ spyr Alída.

Reyndi að klára nuddið hratt

Hún segir að vanda­málið sé ekki ein­stök atvik eins og þetta sem átti sér stað um helg­ina þegar hún varð fyrir áreiti nudd­þega, heldur orð­ræðan í kringum starf nudd­ar­ans. 

Atvikið var engu að síður vissu­lega óþægi­leg lífs­reynsla. „Ég var ekki beint hrædd, þar sem mér fannst ég hafa stjórn á aðstæðum. Ég ákvað að klára nuddið með ákveðni og sleppti alls­konar strokum þar sem mér var farið að líða illa gagn­vart þessum ein­stak­lingi, sem var mjög óþægi­legur. Ég kláraði þetta fljótt til að koma mér út úr þessum aðstæðum strax. Ég vildi klára þetta sem fyrst þar sem ég vissi ekki hvernig ég ætti að tækla þetta,“ segir Alída. Hún telur ólík­legt að eftir þessa reynslu muni hún taka að sér að nudda karl­mann í heima­húsi. „Þetta var svo óþægi­legt atvik að ég vil ekki að það komi upp aftur.“

„Af því að ég er ung kona í þessu starfi þá er litið svo á að maður sé með „happy end­ing“ í gangi.“

Henni finnst verst af öllu þessu hversu algengt það sé að fólk geri lítið úr starf­inu. „Þetta er ein­hver rót­gró­inn brand­ari, það er eins og allir viti af þessum brand­ara og allir fara með hann. Hann er ekki einu sinni fynd­inn. Það er miklu meira bak við þetta nám og þú þarft að leggja hart að þér. Fólk sem fer í þetta nám vill gefa af sér og hjálpa fólki. Fólk sem fer í þetta er að gera það af góðum hug og síðan fær það alltaf svona athuga­semdir. Ég hef alla­vega upp­lifað það þannig. Af því að ég er ung kona í þessu starfi þá er litið svo á að maður sé með „happy end­ing“ í gangi. Þessi maður trúði því í alvör­unni að það væri að fara að ger­ast, eins og hann ætti bara mjög góðan mögu­leika á því,“ segir Alída.  

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár