Þórður kemur út úr skápnum sem klæðskiptingur

Tón­list­ar­mað­ur­inn og for­rit­ar­inn Þórður Her­manns­son hefur und­an­farna mán­uði verið opn­ari með að klæð­ast kvenn­manns­fötum á almanna­færi. Hann segir fjölda karl­manna hafa haft sam­band við sig sem eftir pistil sem hann birtir á Facebook.

Þórður kemur út úr skápnum sem klæðskiptingur
Klæð­skipt­ingur Þórður hefur birt fjölda mynd af sér í kvenn­manns­fötum á Instagram. Mynd: Instagram

Tón­list­ar­mað­ur­inn og for­rit­ar­inn Þórður Her­manns­son skrif­aði Facebook-stöðu­færslu sem hefur mikla athygli en þar kemur hann úr skápnum sem klæð­skipt­ingur eða trans­vestite.

Í sam­tali við Stundina segir Þórður að hann hafi ákveðið að birta stöðu­færsl­una til að koma í veg fyrir allan mis­skil­ing, hann hafi und­an­farna mán­uði verið opn­ari með að klæð­ast kvenn­manns­fötum á almanna­færi.

„Síðustu fjóra mán­uði hef ég verið að koma út í raun­inni. Ég hef verið að fara út klæddur upp og ég hef alveg verið að gera það frá því í ágúst. Málið er að ég var ekk­ert að fara upp að fólki og segja því frá þessu, ég leyfði því að koma til mín og ef ein­hver spurði þá svar­aði ég í fullri hrein­skilni. Ég ákvað að gera þetta svona, því ég var far­inn að fá spurn­ingar frá vinum mínum og nánum fjöl­skyldu­með­limum sem voru að spá í hvað væri í gangi og ég vildi ekki að neinn tæki þessu þannig að ég væri að leyna þessu,“ segir Þórður.

„Ég enda alltaf með því að fara út nákvæmlega eins og ég vill líta út“

Stundin fékk leyfi Þórðar til að birta stöðu­færslu hans í heild sinni.

„Ok ég er að spá í að koma út með þetta svona fyrir fullt og allt. Margir búnir að vera að spyrja á chat og svona þannig að ég vill útskýra aðeins.

Ég er trans­vestite eða klæð­skipt­ingur. Mér finnst orðið klæð­skipt­ingur ekki mjög lýsandi samt og satt best að segja finnst mér þessar skil­grein­ingar ekk­ert endi­lega lýsa því sem ég hef upp­lifað allt mitt líf.

Málið er að ég hef alltaf haft mjög gaman af því að mála mig og klæða mig upp, mun­ur­inn liggur í því að áður hefði ég aldrei farið út mál­aður eða klæddur án þess að hafa eitt­hvað til­efni, getað falið mig á bak við eitt­hvað eins og drag keppnir. Það var ekki fyrr en í ár sem að ég fann fyrir því að mér var hætt að vera sama um hvað fólki finnst um hvernig ég klæði mig eða hvort að ég máli mig.

„Hvaða lyfj­aði ein­stak­lingur er þetta? Af hverju er hann í þessum fötum?“

Ég gerði mér líka grein fyrir því í ár að allir þessir staðlar sem eiga að ná yfir karl­menn í sam­fé­lag­inu eiga ekk­ert endi­lega alltaf við mig og að ég þurfi í raun ekk­ert að fylgja þeim frekar en ég vil. En efinn er oft mik­ill og erfitt að hrista hann af sér. Það er miklu auð­veld­ara að reyna að fylgja bara öðrum en að eiga í hættu að vera dæmdur.

Oft áður en ég fer út er ég mjög efins, ég hugsa um fólkið sem ég er að fara að hitta og hvernig það hugsi: „Hvaða lyfj­aði ein­stak­lingur er þetta? Af hverju er hann í þessum fötum?“

Svo er ég næstum því hættur við að fara svona út, það væri miklu þægi­legra fyrir alla. En ég enda alltaf með því að fara út nákvæm­lega eins og ég vill líta út. Þetta hefur styrkt mig svo mikið sem mann­eskju að ég get ekki einu sinni byrjað að lýsa því. Að þurfa að bakka sjálfan sig upp 100% er bæði það erf­ið­asta en líka það besta sem ég hef gert á ævi minni. Í kjöl­farið er ég orðin sterk­ari og ham­ingju­sam­ari mann­eskja en ég hef nokkurn tím­ann verið.

„Ég held að hræðslan sé oft bundin við það að klæða sig upp og mála sig sé í raun kyn­ferð­is­legur hlutur.“

Við eigum að sækja þennan rétt, að vera eins og við viljum. Eftir að ég byrj­aði að fara út klæddur og mál­aður hef ég fengið fjölda pósta frá karl­mönnum sem að finnst þetta flott og vilja gera nákvæm­lega sama hlut, eða að þeir eru að gera það nú þegar, bara í laumi. Ég segi haldið áfram að gera það, takið mark á þess­ari löngun og leyfið henni að njóta sín.

Ég held að hræðslan sé oft bundin við það að klæða sig upp og mála sig sé í raun kyn­ferð­is­legur hlutur. Kveikjan af því að ég vildi mála mig og klæða mig upp var engan veg­inn kyn­ferð­is­leg. En þetta varpar líka ljósi á aðra skekkju í sam­fé­lag­inu sem er sú að konur eru oft með­vitað/ómeð­vitað álitnar kyn­verur frekar en að þeim sé tekið bara eins og þær eru, áhuga­verðar mann­eskjur í flottum fötum og með flotta máln­ingu.

Önnur skekkja sem að ég hef tekið eftir er sú að karl­mönnum er eig­in­lega ekki kennt að það er allt í lagi að hrósa hvor öðrum fyrir klæð­ar­val og útlit.

En svo að ég komi aftur að skil­grein­ingum þá er það sem ég er að berj­ast fyrir eig­in­lega einmitt það að þurfa ekki að segja ykkur að ég sé trans­vestite eða hvaða skil­grein­ingu sem ætti að ná að ramma mig inn. Ég er bara mann­eskja sem að fílar stundum hluti sem að eru bundnir við kven­kyn, stundum hluti sem að eru bundnir við karl­kyn. Það að þessir hlutir séu bundnir við annað hvort kynið kemur mér ekk­ert við og ætti ekki að hafa áhrif á það hvort að ég leyfi mér að gera þá eða ekki. Mér finnst að mann­eskja af gagn­stæðu kyni ætti að hafa rétt á því að gera nákvæm­lega það sama.

Síðast en ekki síst vill ég þakka fjöl­skyldu og vinum fyrir að vera opin og skiln­ings­rík fyrir þessu. Ég hef bara fengið enda­laust jákvæða strauma frá öllum í kringum mig og það er ótrú­lega fal­legt og sýnir mér bara hversu gott fólk ég á í kringum mig og á hversu góðri leið við erum sem sam­fé­lag.

Það tók mig 28 ár að læra að taka mark á sjálfum mér en ég er alla­veg­anna loks­ins byrj­aður og ég þakka fyrir það á hverjum degi.

ást

D“

Hefur ekki tíma á morgnana

Í sam­tali við Stundina segir Þórður að í dag sé hann mikið opn­ari með að fara út í kvenn­manns­fötum og geri það raun þegar honum sýn­ist. „Ég geri það þannig núna að ég fer ekki í vinn­una svona, ekki enn þá, en það gæti gerst. En „basically“ alltaf eftir vinnu, þegar ég fer út, mála ég mig hvernig sem ég vill og það er mjög lík­legt að það auk­ist. Núna er ég að reyna að gera þetta eins oft og vil og get. Ég reyni að láta sem minnst stoppa mig. Ég gæti alveg mætt í vinn­una svona en ég geri það ekki af þeim ástæðum að oft hef ég ekki tíma til þess á morgn­anna, því ég er „late-sleeper“. Í vinn­unni er fólk með á hreinu hvað ég er að gera, ég hef mætt á jóla­hlað­borð þannig. Það er ekk­ert sem er að stoppa mig,“ segir Þórður.

„Í vinn­unni er fólk með á hreinu hvað ég er að gera, ég hef mætt á jóla­hlað­borð þannig. Það er ekk­ert sem er að stoppa mig.“

Hann segir að það væri þjóð­ráð að koma á fót stuðn­ings­neti klæð­skipt­inga sem er raunar ekki til staðar á Íslandi. „Það er ekki mikið í gangi. Ég hef fundið fyrir því. Það er rosa mikið um þetta, ég hef fundið að karl­menn sem hafa haft sam­band við mig og eru mikið að spá í þessu miðað við hvað er lítil fræðsla. Það er hópur sem heitir Trans Ísland sem er nokkurn veg­inn svona en það er mikið fólk sem vill leið­rétta kyn sitt. Ég virði það af öllu mínu hjarta en mér finnst ég ekki vera fastur í karl­manns­lík­ama, ég er ekki ósáttur með það sem ég hef,“ segir Þórður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár