Þingmenn allra flokka minnast Guðbjarts með hlýju: „Hann var hlýr, réttsýnn, samviskusamur“

Guð­bjartur Hann­es­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi ráð­herra, lést í morgun. Þingmenn allra flokka senda aðstand­endum sam­úð­ar­kveðjur á Facebook og minn­ast hans sem vinar og félaga sem hægt var að leita til. „Hann var alltaf boð­inn og búinn til að aðstoða.“

Þingmenn allra flokka minnast Guðbjarts með hlýju: „Hann var hlýr, réttsýnn, samviskusamur“

Þingmenn úr öllum flokkum hafa birt hjart­næmar sam­úð­ar­kveðjur til aðstand­enda Guð­bjarts Hann­es­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi ráð­herra. Hann lést í morgun eftir bar­áttu við krabba­mein.

Hans er minnst sem vinar og félaga sem sýndi öðrum vel­vild og hlýju. Þannig segir Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar að það hafi auðgað sitt líf að verða sam­ferða Guð­bjarti í stjórn­málum. „Við minn­umst góðs félaga og vinar. Kynnin af Gutta sýndu mér að það var engin til­viljun að hann varð upp­alandi og skóla­maður. Hann var félagi af hug­sjón og lífs­skoðun – vildi alltaf vinna með fólki og auðga líf sam­ferða­manna. Hann var alltaf til­bú­inn að leggja meira á sig en aðra og brást alltaf við hverri hjálp­ar­bón. Sannari og traust­ari félaga hef ég ekki fundið. Hugur okkar er hjá Sigrúnu, Birnu, Hönnu Maríu og fjöl­skyld­unni allri,“ skrifar Árni Páll.

 

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, segir að hans verði sárt saknað, enda með betri mönnum sem hún hafi kynnst. „Guð­bjartur Hann­es­son félagi minn og vinur er fall­inn frá. Sé hann fyrir mér hlæj­andi sínum hlýja hlátri enda ein­stakt ljúf­menni, sann­gjarn og skemmti­legur en sótti fast þegar á þurfti að halda. Við erum mörg sem munum sakna hans óskap­lega mikið. Einn af þeim bestu sem ég hef kynnst. Sam­úð­ar­kveðjur sendum við hans nán­ustu.“

 

Annar þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helgi Hjörvar, minn­ist Guð­bjarts sem skel­eggs bar­áttu­manns: „Félagi okkar Guð­bjartur Hann­es­son lést í dag langt fyrir aldur fram eftir æðru­lausa viður­eign við ill­vígt krabba­mein. Þar fór ein­stak­lega sann­gjarn og skel­eggur bar­áttu­maður fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi og mann­eskju­legra. Sigrúnu og fjöl­skyldu hans sendi ég mínar dýpstu sam­úð­ar­kveðjur.“

 

 

Samúðarkveðjur frá stjórnarþingmönnum 

Þingmenn ann­arra flokka hafa einnig heiðrað minn­ingu Guð­bjarts í dag. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann hafi verið rétt­sýnn og hjarta­hlýr maður. „Góður drengur er það fyrsta sem kemur í hug­ann þegar ég minn­ist Guð­bjarts Hann­es­sonar. Hann var rétt­sýnn og hjarta­hlýr og hans verður sárt saknað. Ég vil votta fjöl­skyldu hans samúð mína.“ 

 

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir mik­inn missi af góðum manni. „Ég sam­hrygg­ist fjöl­skyldu, vinum og sam­herjum Guð­bjarts Hann­es­sonar inni­lega. Það er mik­ill missir af þessum góða manni,“ skrifar Eygló.

 

 

Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­maður Fram­sóknar, minn­ist þess hversu reiðu­bú­inn Guð­bjartur var til þess að aðstoða sam­starfs­menn sína óháð því í hvaða flokki þeir væru: „Guð­bjartur Hann­es­son, Gutti, hefur kvatt þennan heim alltof snemma. Blessuð sé minn­ing hans. 
Ég og Gutti sátum saman í Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd og Vel­ferð­ar­nefnd þings­ins. Hann var alltaf boð­inn og búinn til að aðstoða þó við værum ekki alltaf á sömu skoðun og met ég það mik­ils.
Ég votta fjöl­skyldu hans, vinum og sam­herjum mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur.“

 

„Hugurinn er hjá fjölskyldunni“

Þá hafa þing­menn úr röðum Pírata, Vinstri grænna og Bjartrar fram­tíðar sent aðstand­endum hans sam­úð­ar­kveðju. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, segir að Guð­bjartur hafi verið ákaf­lega mann­eskju­legur í öllu sam­starfi. „Mikið sem ég mun sakna hans Gutta af þing­inu. Hann var hlýr, rétt­sýnn, sam­visku­samur, heil­steyptur og ákaf­lega mann­eskju­legur í öllu okkar sam­starfi. Blessuð sé minn­ing hans. Ég votta fjöl­skyldu hans og vinum samúð og sendi þeim styrk og birtu,“ skrifar Birgitta.

 

 

Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, segir það for­rétt­indi að hafa fengið tæki­færi til að starfa með Guð­bjarti: „Góður maður fall­inn frá, það voru mikil for­rétt­indi að fá að kynn­ast og vinna með Gutta. Betri mentor var ekki hægt að fá fyrir mig sem þing­mann sem var að stíga sín fyrstu skref á hálu svelli stjórn­mál­anna. Alltaf boð­inn og búinn til að hjálpa og gefa góð ráð. Blessuð sé minn­ing hans.“

 

 

Þá segir Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, að Guð­bjartur hafi verið ynd­is­legur maður: „Góður félagi og ynd­is­leg mann­vera hann Gutti sem gott var að vinna með. Hugurinn er hjá fjöl­skyld­unni sem þarf að kveðja alltof snemma.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár