„Þeir tóku líka skírnar­gjafir dóttur minnar“

Brotist var inn til Ásu Þor­steins­dóttur um síð­ustu helgi. Hún biðlar til þjóf­anna um að skila eignum sínum.

„Þeir tóku líka skírnar­gjafir dóttur minnar“

Ung móðir, sem kom fór út að skemmta sér um síð­ustu helgi, varð fyrir því að brot­ist var inn á heim­ili hennar í Foss­vog­inum í Reykja­vík um nótt­ina og nán­ast öllum verð­mætum stolið. Kærasti hennar var í rjúpna­veiði og fjög­urra mán­aða dóttir í pössun hjá móður hennar í Keflavík.

Ása Þorsteinsdóttir
Ása Þor­steins­dóttir

„Lög­reglan segir að þetta hafi verið planað, mjög lík­lega,“ segir Ása Þor­steins­dóttir. „Þetta hefur ekki verið random, lík­lega voru þeir búnir að fylgj­ast með okkur, sem er nátt­úru­lega ógeðs­legt. Maður fær bara hroll.“

Ása seg­ist aldrei hafa ímyndað sér að verða fyrir inn­broti. „Ég er orð­laus. Maður býr á Íslandi og heldur ein­hvern veg­inn að það ger­ist ekki neitt. Greini­lega getur hvað sem er gerst.“

„Maður býr á Íslandi og heldur ein­hvern veg­inn að það ger­ist ekki neitt.“

Í Reykja­vík var tíðni inn­brota 43 á hverja 10 þús­und íbúa í fyrra.

Aðferð þjóf­anna á heim­ili Ásu við Hörða­land 8 var að brjóta upp lít­inn eld­hús­glugga, sem snýr að bak­garði á jarð­hæð, og smeygja sér þar inn. Þeir rót­uðu í öllum eigum heim­il­is­fólks, köst­uðu því sem þeir tóku ekki frá sér í íbúð­inni og báru það sem þeir vildu út um svala­dyrnar. Á meðan höfðu þeir sett hurð­ar­keðju fyrir dyrnar sem snúa að stiga­gang­inum. Þegar Ása kom heim kom hún að hlekkj­aðri hurð og þurfti að brjóta sér leið inn. Enginn nágranni varð var við neitt. Dóttir Ásu, Ísabella Lilja, var skírð 13. sept­em­ber og tóku þjóf­arnir skírn­ar­gjafir hennar með sér.

„Það var allt tekið sem var með ein­hver verð­mæti. Tölvan, heima­bíóið, leikir, skart­gripir, úr, iPadar, sími, háskóla­bæk­urnar mínar og rán­dýr föt. Þeir tóku líka skírnar­gjafir dóttur minnar; skart­gripi, janus-ull­ar­föt, cintamani-föt og 66 gráður norður föt.“ 

Ása þarf nú að vinna upp glötuð skóla­verk­efni sem voru í tölv­unni þegar henni var stolið af heim­il­inu. Hún getur illa hugsað sér að vera á heim­ili sínu eftir inn­brotið.

Þjófarnir fóru á brott á bíl Ásu, Hyundai i3Q með núm­erið YRP-22. Þeir sem verða varir við eigur Ásu eru beðnir um að hafa sam­band við lög­reglu.

Ása biðlar til þjóf­anna. „Hafið ein­hverja sam­visku og skilið þessu. Þetta er bara ömur­legt. Maður fær hroll af því að hugsa um þetta, og líka bara að fólk hafi enga sam­visku.“

Hún mun fylgj­ast með vef­síðum þar sem not­aðir hlutir eru til sölu í von um að finna þjóf­ana og eigur sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár