Áttræð kona berst við Bílastæðasjóð: „Þau mega selja bílinn minn“

82 ára kona fékk 20 þús­und króna sekt fyrir að leggja í bíla­stæði fyrir hreyfi­hamlað fólk. Er öryrki en átti eftir að end­ur­nýja stæð­iskortið.

Áttræð kona berst við Bílastæðasjóð: „Þau mega selja bílinn minn“
„Þetta er hót­un­ar­bréf“ Ásbjörg Helga­dóttir líkir inn­heimtu­bréfi Bíla­stæða­sjóðs Reykja­víkur við hót­un­ar­bréf. Þar kemur meðal ann­ars fram að ef hún borgar ekki sekt­ina megi setja bíl­inn hennar á nauð­ung­ar­upp­boð. Mynd: Kristinn Magnússon

Ásbjörg Helga­dóttir er í upp­námi eftir að hafa fengið, að hennar mati, harð­ort inn­heimtu­bréf frá Bíla­stæða­sjóði þar sem henni er gert að greiða tutt­ugu þús­und krónur í sekt fyrir að hafa lagt í bíla­stæði fyrir hreyfi­hamlað fólk. Ásbjörg er 82 ára gömul og er bæði öryrki og elli­líf­eyr­is­þegi. „Ég er búin að fá tvö bréf. Fyrst fékk ég bréf um að ég hefði verið sektuð um tíu þús­und krónur fyrir að leggja, að mér skild­ist, öfugt í stæði fatl­aðra. Ég þótt­ist nú vera með fatl­aðra merki, en á víst eftir að end­ur­nýja það. Mér finnst ég nú til­tölu­lega nýbúin að end­ur­nýja það,“ segir Ásbjörg. Þess má geta að stæð­iskort fyrir hreyfi­haml­aða eru gefin út í til­tek­inn tíma, að hámarki fimm ár en ekki skemur en tvö ár. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár