Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata, sagði í Silfrinu á RÚV í gærmorgun „Það er í rauninni bara miklu meira fólk sem þarf húsnæði en framboðið er. Þá náttúrulega bara hækkar verðið og ég meina ég er ekkert að fara að sjá fram á það að geta keypt mér íbúð einhverntíman á næstunni, það er bara frekar ómögulegt að mínu mati.“ Dagur Hjartarson, kennari og rithöfundur, gagnrýndi ummæli Ástu Guðrúnar á Twitter og skrifaði: „Ættir að geta sparað fyrir útborgun á einu ári miðað við þetta. Sem er ekki alveg í takt við reynslu flestra ungra Íslendinga.“ Miðað við ráðstöfunartekjur og neysluviðmið einstaklinga kemur í ljós að það það gæti tekið rúmlega ár fyrir þingmann að safna fyrir útborgun af lítilli íbúð miðsvæðis í Reykjavík. Hins vegar tæki það 13 ár fyrir grunnskólakennara að safna sér fyrir sömu íbúð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir