Laxnessbækur rannsóknarframlag við Háskóla Íslands

Hannes Hólm­steinn: „Á bak við þær allar þrjár liggja mjög miklar og margra ára rann­sóknir, þótt ég hafi vissu­lega í fyrsta bind­inu notað texta Laxness í miklu meira mæli en í síð­ari bind­unum“

Laxnessbækur rannsóknarframlag við Háskóla Íslands

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor taldi bækur sínar um Halldór Laxness fram sem rann­sókn­ar­fram­lag til Háskóla Íslands. Frá þessu greinir hann í sam­ræðum við Einar Stein­gríms­son, stærð­fræði­pró­fessor, á Facebook. Ævisaga nóbels­skálds­ins eftir Hannes er í þremur bindum, en í fyrsta bind­inu nýtti Hannes sér texta skálds­ins lítt breyttan án þess að geta heim­ilda. Í kjöl­farið var hann dæmdur fyrir brot gegn höf­und­ar­rétti. 

„Já, ég taldi þær allar fram. Ég birti raunar á hverju ári rann­sókna­skýrslu mína hér á Netinu. Á bak við þær allar þrjár liggja mjög miklar og margra ára rann­sóknir, þótt ég hafi vissu­lega í fyrsta bind­inu notað texta Laxness í miklu meira mæli en í síð­ari bind­unum (sem helg­ast ekki síst af því, að það voru oft einu heim­ild­irnar um æsku hans). Ég hefði vissu­lega átt að skrifa sjálf­stæð­ari texta,“ skrifar hann í svari sínu til Einars Stein­gríms­sonar. 

Háskóla­kenn­arar skila árlega inn rann­sókna­skýrslu og fá punkta fyrir rann­sókn­ar­fram­lög sín, en punkt­arnir geta haft áhrif á launa­flokk og fram­gang í starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár