Lögreglan borgaði almannatenglum tæpa milljón vegna lekamálsins og vandræða vegna búsáhaldaskýrslu

Ólga í lög­regl­unni vegna fjár­út­láta til KOM

Lögreglan borgaði almannatenglum tæpa milljón vegna lekamálsins og vandræða vegna búsáhaldaskýrslu

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM hefur fengið 830 þús­und krónur frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna aðstoðar við að bæta ímynd lög­regl­unnar og lög­reglu­stjóra í tengslum við leka­málið og mis­tökin sem gerð voru við vinnslu og birt­ingu skýrsl­unnar um Bús­á­halda­bylt­ing­una. 

Stundin sendi lög­regl­unni fyr­ir­spurn um sam­starf lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­lög­reglu­stjóra við ráð­gjafa­fyr­ir­tæki á dög­unum. „LRH og RLS leita leiða til að auka hag­kvæmni í rekstri upp­lýs­inga- og fjar­skipta­mála. Viðbúið er að kallað verði eftir ráð­gjöf á því sviði, en engir samn­ingar þess efnis  hafa verið und­ir­rit­aðir,” sagði í svari upp­lýs­inga­full­trúa lög­regl­unnar.

Í dag greinir Kjarninn hins vegar frá því að KOM hafi fengið hátt í milljón fyrir almanna­tengsla­þjón­ustu. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa fjár­út­lát til fyr­ir­tæk­is­ins vegna krísu­stjórn­unar og ímynd­ar­fegr­unar eftir að Sigríður Björk tók við emb­ætti valdið nokk­urri ólgu og óánægju innan lög­regl­unnar.

Á meðal lyk­il­manna fyr­ir­tæk­is­ins KOM Public Relations er Friðjón R. Frið­jóns­son, en hann hefur tekið þátt í skipu­lagn­ingu kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og gegnt starfi upp­lýs­inga­full­trúa í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Þá var hann um tíma aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

KOM aðstoð­aði Geir H. Haarde að rétta sinn hlut í fjöl­miðlum vegna lands­dóms­máls­ins á sínum tíma. Skemmst er að minn­ast þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins við Víglund Þor­steins­son, athafna­mann sem athygli hefur vakið í fjöl­miðlum vegna ásak­ana á hendur emb­ætt­is­manna vegna aðgerða sem gripið var til við end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins.

Þau ímynd­ar­vand­ræði sem hrjáð hafa lög­regl­una varða úrskurði Per­sónu­verndar frá því í lok febr­úar. Komst Per­sónu­vernd að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir hefði, sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, ekki fylgt 11. og 12. grein per­sónu­vernd­ar­laga þegar hún afhenti Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra, lög­reglu­gögn um hæl­is­leit­endur. Þá hefur lög­reglan einnig þurft að svara fyrir vinnu­brögð við gerð skýrslu um bús­á­halda­bylt­ing­una og mis­tök sem urðu við birt­ingu hennar, einnig á vakt Sigríðar Bjarkar. 

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri hefur verið treg til að veita við­töl vegna umræddra mála og ekki svarað fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búsáhaldaskýrslan

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár